Frjáls verslun - 01.06.1979, Blaðsíða 56
húsum, aö kanna áhrif mismun-
andi kaupgreiðsluforma og verk-
skipulagningar í byggingariðnaði,
að finna bestu leiðir til þess að
losna við kuldabrýr ofl.ofl.
Stofnunin gæti síðan birt al-
menningi niðurstöður athugan-
anna í áðurnefndum bæklingi eða
riti, eða látið þær í té gegn vægu
gjaldi.
Húsnæðismálastofnun gæti
jafnvel gengið enn lengra og hafið
útgáfu á aðgengilegum leiðbein-
ingabæklingi um húsbyggingar-
tækni. Bæklingurinn gæti auk
ofannefnds efnis m.a. innihaldið
leiðbeiningablöð (Rb-blöð) Rann-
sóknarstofnunar byggingariön-
aðarins og staðla Iðntæknistofn-
unar á sviði byggingariónaðar.
í bæklingnum væri og æskilegt
að hafa upþlýsingar um alla þá
þjónustu, sem í þoði er fyrir hús-
byggjandann, hvort sem um er að
ræða af hálfu hins opinbera eða á
frjálsum markaði.
Húsbyggjandinn gæti í raun
fengið allar helstu upplýsingar,
sem hann þarf á að halda á einum
stað í slíkum bæklingi. Leiðbein-
ingabæklingnum ætti síðan að
dreifa til sem flestra, sem hyggja á
húsbyggingar, gegn vægu gjaldi til
þess að allir geti haft tækifæri til
þess að eignast hann.
Eins og málum er nú háttað er
veruleg hætta á að fjármunir nýtist
illa í byggingariðnaði vegna upp-
lýsingaskorts eöa skorts á þekk-
ingu eða reynslu. Bæklingur eins
og hér hefur verið lýst myndi að
líkindum borga sig fljótt þegar af
þeirri ástæðu að húsbyggjandinn
gerði væntanlega færri skyssur og
yrði því fyrir minni kostnaði og
tjóni en ella.
Annað veigamikið verkefni, sem
Tæknideild gæti tekiö upp er
einnig í samræmi við lagatextann,
en það er að leggja tæknilegt mat
á byggingaraðferðir og/eða fram-
leiðsluaðferðir, húsagerðir og
byggingarefni, sem notað er, og
veita byggingaraðilum mismun-
andi há lán í samræmi við niður-
stöður matsins.
Mat þetta mætti framkvæma í
samvinnu við Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins, sem einmitt
nú heldur á lofti kostnaðargrein-
ingarkerfi, sem stofnunin hefur
hannað, en jafnframt hefur á veg-
um stofnunarinnar verið samið
heilmikið rit um tæknimat húsa,
sem nýta mætti í þessum tilgangi.
Samstarfið við Rannsóknarstofn-
un byggingariðnaðarins væri
æskilegt til þess að tryggja eftir því
sem við verður komið hlutlaust og
vandað mat.
Markmiðið með mismunun í
lánafyrirgreiöslum er eins og áður
segir að örva tækniþróun og
stuðla að lækkun byggingar-
kostnaðar. Aðilar, sem nota óhag-
kvæmar byggingaraðferðir, eða
hafa ónóg vörugæði, myndu fljótt
falla út af markaðnum hér sem er-
lendis.
Til þess að geta sett tæknileg
skilyrði fyrir lánveitingu er stofn-
ununinni þörf á margháttuðum
rannsóknum og athugunum.
Stofnuninni yrði og nauðsynlegt
að fylgjast náið með tæknifram-
förum í byggingariðnaði innan-
lands sem utan, og hefði beinna
hagsmuna að gæta varðandi
kynningu og innleiðingu tækninýj-
unga í greininni. Sýningar, ráð-
Plaueinangrun, >;teinull, glerull m/eða án ál-
pappírs, álpappírsrúllur, glerullarhólkar, plast-
einangrunarhólkar.
Allt til einangrunar - og verðið hefur náðst ótrúlega
^ langt niður vegna magninnkaupa.
Byggingavörudeild
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
50