Frjáls verslun - 01.12.1979, Blaðsíða 10
STIKLAÐ Á STORU...
Norræn sam-
keppniskönnun
Fyrir nokkru reyndi stjórn Félags
ísl. stórkaupmanna aö fá frá iön-
aðarráðuneytinu eintak af nor-
rænni samkeppniskönnun sem
gerö var á síðasta ári, en var tjáö að
þessar niöurstööur yrðu ekki gerð-
ar opinberar. Þar sem mönnum var
kunnugt um að þessi könnun var
ekkert leyndarmál á hinum Norður-
löndunum þá óskaði félagið eftir
því að fá eintak beint frá dönsku
stórkaupmannasamtökunum og
fékk skrifstofan eintak mjög fljót-
lega. Stjórn F.I.S. hefur kynnt sér
innihald þessarar skýrslu, en hún
fjallar almennt um þróun í efna-
hagsmálum, utanríkismálum og
stefnu í efnahagsmálum á þessum
áratug og sérstaklega stefnuna
gagnvart iðnaði. Þá er all ítarlega
fjallað um styrki og stuðning þess-
ara landa við sinn iðnað og sér-
staklega fjallað um fata- og skóiðn-
að, tréiðnað, pappírsiðnað og
skipasmíðar.
Fram kemur i þessari skýrslu að
mjög erfitt er að bera löndin saman
og í raun má segja að þetta sé
meira lýsing heldur en að sé veriö
aö draga fram ákveðnar niðurstöð-
ur eða samanburð. Gefur skýrslan
kannski ekki mjög mikilsverðar
upplýsingar nema með áframhald-
andi könnunum og athugunum og
voru stjórnarmenn F.(.S. sammála
um að innihald hennar snerti að
mjög litlum hluta starfsemi félags-
ins. Stjórnin taldi þó mjög undar-
legt að slíkri skýrslu væri haldið
sem leyniplaggi hér á (slandi en
hún væri opinbert plagg á hinum
Norðurlöndunum.
Veðdeild
Landsbankans
Meginverkefni Veódeildar
Landsbankans er að annast af-
greiðslu lána, sem veitt eru á veg-
um Flúsnæðismálastjórnar. Há-
markslán til hverrar íbúðar var
3.600 þús. kr. á árinu 1978, sem
greidd voru í þremur jöfnum hlut-
um, 1.200 þús. kr. í hvert sinn á sex
mánaða fresti. Greiðist því öll láns-
upphæðin á sem næst einu ári. Á
árinu voru afgreidd lán til 2.185
nýrra íbúða og 3.590 viðbótarlán,
eða alls 5.775 lán að fjárhæð 6.927
millj. kr. Á árinu 1977 voru sam-
bærilegar tölur 2.161 ný lán og
3.074 viðbótarlán, eða alls 5.235
lán að fjárhæð 4.765 millj. kr. Á ár-
inu 1978 voru því veitt 540 fleiri lán
en á árinu 1977, og lánsfjárhæðin
var 2.162 millj. kr. hærri en 1977.
Frá 2. nóvember 1955, er lánveit-
ingar þessar hófust og til ársloka
1978, hefur heildarfjárhæð lána
numið 25.858 millj. kr. til 29.966
íbúða, sem skiptist í 69.725 lán.
Nordfisk
( lok síöasta árs hófst all víðtæk
samvinna um samnorrænt kol-
munnaverkefni á vegum Nordforsk
og á því að Ijúka í ágúst á næsta ári.
Þátttakendur eru frá Noregi, Fær-
eyjum og íslandi, en óbein aðild er
frá Danmörku og Svíþjóð. Þátt-
tökustofnanir af (slands hálfu eru
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
og Hafrannsóknastofnunin.
Rannsóknastofnanir fiskiðnað-
arins í Noregi, Færeyjum og íslandi
hafa skipt með sér verkum að því er
varðar meðferð afla, vinnslu og af-
urðaframleiðslu. ( Noregi var próf-
aður flutningur kolmunnans í
kældum sjó, marningsvinnsla og
framleiðsla á bollum og öðrum
marningsafurðum. ( Færeyjum var
lögð áhersla á flökun, roðflettingu
og framleiðslu á flakablokk. Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins hefur
rannsakað hvaða áhrif meðferð
fisksins í veiðarfærum og um borð i
veiðiskipum hefur á vinnslugæði,
einnig hafa verið gerðar tilraunir
með flutning og geymslu kolmunn-
ans í ískældum sjó í gámum ásamt
tilheyrandi geymsluþolstilraunum.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
hefur einnig gert tilraunir með
slægingu og þurrkun til skreiðar-
framleiðslu.
íslandskynning
í Frakklandi
Farið er að huga að skipulagi (s-
landskynningar í Frakklandi
næsta ár. Kynningardagar hafa
verið ákveðnir og eru þeir þessir:
12. feb. í Strassburg; 14.—16. feb. í
París og 19.—21. feb. í Lyon. Meðal
þess sem þar verður kynnt verður
íslenskur matur, tískufatnaður og
iðnvarningur. Fjölmargir standa að
kynningunni m.a. sendiráð (slands í
París og skrifstofa Flugleiða þar í
borg. Þá munu Flugleiðir og Hótel
Loftleiðir koma þar við sögu ásamt
Ferðamálaráði, Útflutningsmið-
stöðinni og utanríkis- og viðskipta-
ráðuneytum (slands.
Ein skrifstofa
í Svíþjóð
Endurskoðun á starfsemi Flug-
leiða í Gautaborg er nú lokið og
hefur ákvörðun verið tekin um lok-
un skrifstofu félagsins þar. Ekki er
10