Frjáls verslun - 01.12.1979, Blaðsíða 8
Guðmundur Bjarnason var kjörinn á þing
fyrir Framsóknarflokkinn í síðustu alþingis-
kosningum, en Guömundur bauð sig fram í
Norðurlandskjördæmi eystra.
Guðmundur er fæddur á Húsavík 9. október
1944. Hann lauk prófi frá samvinnuskólanum á
Bifröst 1963 og hóf sama ár verslunarstörf við
Kaupfélag Þingeyinga. Áriö 1967 réðst hann til
útibús Samvinnubankans á Húsavík og starfaði
þar þangað til hann gerðist útibússtjóri bank-
ans í Keflavík 1977.
Guðmundur hóf snemma þátttöku í stjórn-
málum og var m.a. einn af stofnendum Félags
ungra Framsóknarmanna á Húsavík. Hann
hefur lengi verið í miðstjórn Framsóknar-
flokksins og 1970 var hann kosinn í bæjarstjórn
Húsavíkur og síðan aftur 1974 og varð hann þá
forseti bæjarstjórnarinnar þangað til hann flutti
suður, 1977 eins og áður sagði.
Guðmundur var þrisvar sinnum áður á fram-
boðslista Framsóknarmanna til alþingiskosn-
inga, en aldrei áður verið svo framarlega sem
nú.
Aðspurður kvaöst Guömundur kunna ágæt-
lega við sig á nýbyrjuðu þingi. Um nokkuö erfið
viðfangsefni væri að ræða og erfiðleikar í
stjórnarmyndun gera allar ákvarðanir mun
erfiðari viðfangs.
áfangar
Egill Jónsson var kjörinn á Alþingi sem 12.
landskjörinn þingmaður í síðustu alþingis-
kosningum.
Egill er fæddur 14.12. 1930. Hann lauk
kandidatsprófi frá Hvanneyri 1953, hóf störf
sem umferðarráðunautur Búnaðarfélags Is-
lands og gegndi því starfi í tæp tvö ár.
Árið 1956 stofnar Egill nýbýlið Seljavelli í
Neshreppi í Austur-Skaftafellssýslu. Búnaðar-
þingsfulltrúi var Egill kjörinn 1954 og hefur
setið á búnaöarþingum síðan. Fljótlega eftir
1956 var hann ráðinn sem búnaðarráðunautur
Búnaðarsambands Austur-Skaftafellssýslu og
hefur gegnt því starfi síðan.
Egill hefur gegnt fjölda annarra trúnaðar-
starfa m.a. setið í sveitarstjórn á annan áratug.
Afskipti af stjórnmálum hóf hann snemma, var
t.d. formaður kjördæmisráös Sjálfstæðis-
manna á Austurlandi. Egill fór fyrst í framboð
1974, var þá í fjórða sæti á lista Sjálfstæðis-
manna á Austurlandi. 1978 var hann í þriðja
sæti og nú í öðru sæti á lista Sjálfstæðismanna.
Egill er kvæntur Halldóru Hjaltadóttur og
eiga þau fjögur börn.