Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1979, Blaðsíða 43

Frjáls verslun - 01.12.1979, Blaðsíða 43
mánuöi og var t.d. rösklega 31 tonn fyrir síðustu jól. Þaö er mjög góö skipulagning á póstdreifing- unni hér í Kaupmannahöfn, og við reynum að láta okkar hlut ekki eftir liggja. Bréfapóstur, svo og ábyrgðarsendingar og hraðsend- ingar hafa forgang. Póstsending- arnar eru yfirleitt nokkuð fyrirferð- armiklar og taka mikið pláss í vél- unum. Guðmundur sagði að helzti þröskuldurinn fyrir enn meiri vöruflutningum með flugvélum til og frá íslandi væri sá, að venju- lega væri ekki um miklar vörur að ræða sem fluttar væru frá íslandi, og því erfiðara en ella að fara hreinar vöruflutningaferðir. — Það er helzt ullarvara sem kemur frá íslandi með flugvélum hingað, og nokkuð hefur einnig verið flutt af kjöti og rækju. Fisk er hins vegar mjög erfitt að flytja með þessum flugvélum, nema þá í sérstökum umbúðum, þar sem gæta verður þess að engin lykt komi í vélarnar. Þann dag sem Frjáls verzlun ræddi við Guðmund G. Jónsson flutti Flugleiðavél vörur til islands, og gafst því tækifæri til þess að fylgjast með fermingu vélarinnar. Varan sem átti aö fara til íslands var tínd saman í þjónustumiðstöð- inni, og var greinilegt að hún kom úr ýmsum áttum. Gengið var frá vörunni á sérstaka palla, og þeim síðan lyft um borð í vélina, eftir að hafa verið vigtaðir og mældir. Eins og fram kom áður hjá Guð- mundi takmarkast vörumagnið miklu oftar af umfanginu en þyngdinni. Sagði hann að mjög algengt væri þegar full vél af vör- um væri send til íslands að heild- arþyngd vörunnar væri um eða innan við 10 lestir, en vélin getur borið 15-16 lestir. í þetta sinn var þyngd vörunnar um eða innan við 5 lestir. Eftir að búið er að koma vörunni um borð í vélina, er hún rækilega skorðuð þar og falla pallarnir sem hún er flutt á í rennur sem komið er fyrir á gólfi vélarinn- ar. Er mjög mikið atriði að vélin sé rétt hlaðin og að þannig sé gengið frá hnútunum að ekki sé hætta á að vörupallarnir haggist t.d. ef ókyrrð er í lofti. — Ég hef trú á því að það verði þróunin í framtíðinni að vöruflutn- ingar héðan frá Kaupmannahöfn til íslands með flugvélum haldi áfram að aukast, sagði Guðmund- ur G. Jónsson, að lokum, — það hefur tvímælalaust mikla kosti í för með sér fyrir þá sem þurfa að fá vörur heim, að flytja þær með flugvélum. Slíkt getur sparað þeim verulegan tíma, og auk þess fer venjulega betur um vöruna, heldur en ef hún er flutt á annan hátt. FLVCFÉlt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.