Frjáls verslun - 01.12.1979, Blaðsíða 14
Kreppuhljóð
í verslunar-
eigendum
Erlendir sérfræöingar hafa sagt, aö þaö
væru takmörk fyrir því, hve há veröbólga
gæti ríkt í einu landi án þess aö lýðræöis-
skipulagi þess og lifnaöarháttum þjóöar-
innar væri stefnt í voöa.
Þennan áratug, sem nú er aó renna skeiö
sitt á enda, má tvímælalaust kalla verö-
bólguáratuginn á íslandi. Viö höfum búiö
viö langtum meiri verðbólgu en viögengst í
næstu nágrannalöndum okkar og jafnvel
þótt víðar væri leitaö.
„Hættan fyrir kaupmanninn á
horninu er sú, að fólk leitar meira
og meira í stórmarkaðina með
stórinnkaupin, en fer svo síðan í
búðina á horninu til að kaupa
mjólk, brauð og annað smáræði,
sem lítil álagning er á. Þær vörur
sem hærri álagning er á hreyfast
lítið í litlu búðunum, en út á þær
gengur rekstur þeirra."
Óskar Jóhannsson, kaupmaður,
Sunnubúðinni í Mávahlíð.
*
„Duglegur maður hefur miklu
meira útúr því að vinna sem
verslunarstjóri hjá stórri verslun
en stofna sína eigin búð. Auk þess
er hann tryggður, hefur lífeyris-
sjóð og atvinnuöryggi. Þetta hefur
kaupmaðurinn ekki.
Tekjurnar eru orðnar minni því
kaupgeta fólks hefur minnkað og
veltuhraðinn er hægari.“
Jón Sigurðsson,
kaupmaður í Straumnesi
í Breiðholti.
#
„Kaupmenn eru alltaf hræddir
um hver áramót, en hræðslan er
nú meiri en nokkru sinni fyrr og
það er m.a. vegna hins ótrygga
stjórnmálaástands.
Ég er ansi hræddur um að unga
fólkið eigi eftir að reka sig á eins
og vaxtakostnaðurinn er orðinn í
dag.“
Ebeneser Ásgeirsson
eigandi Vörumarkaðarins.
Áhrif verðbólgunnar á lifnaðar-
hætti þjóðarinnar eru mikil, en á
„lífsstandard" hennar svo til eng-
in, alla vega er hann með því
hæsta sem gerist í heiminum í dag.
Aftur á móti kann að reynast erfitt
aö mæla þau áhrif sem verðbólgan
hefur haft á lýðræðisskipulag og
stjórnskipun landsins, en auðvelt
er að leiða líkum að því, að þau
áhrif eru mikil. Út í þá sálma skal
þó ekki farið hér.
Verðbólgan hefur nú náð 81%
miðað við eitt ár og sýnist ekkert
lát á vexti hennar. Flestum þeim,
sem reka heimili og hafa fyrir fjöl-
skyldu að sjá, hefur reynst æ
erfióara að láta enda ná saman og
14