Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1979, Page 22

Frjáls verslun - 01.12.1979, Page 22
I Hvað er að fréffa hjá Skrá yfir 100 stærstu fyrirtækin á íslandi var birt ísíðasta tölublaði Frjálsrar verzlunar. Blaðið leitaði til forstöðumanna nokkurra fyrirtækja, sem efst eru á listanum eða hafa vakið athygli fyrir mikil umsvif og vaxandi. Fara hér á eftir stuttar greinargerðir byggðar á viðtölum við þá. Sérstakur listi var gerður yfir stærstu opinberu stofnanirnar, þar á meðal flugmálastjórn. Það kom greinilega fram í samanburði milli stofnana, að starfsmenn á flugmálasviðinu fá að meðaltali hærri launagreiðslur en fólk hjá öðrum helztu stofnunum ríkisins. Flugmálastjórinn var beðinn um að skýra þetta nánar. Eiga Flugleiðir að vera í efsta sæti? ,,Því er ekki að leyna að það hefur gengið illa á þessu ári," sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, annars stærsta fyrir- tækis landsins í viðtali. Raunar er það álitamál, hvort SÍS eða Flug- leiðir hreppa forystusætið, eins og nánar verður vikið að síðar í þessu spjalli. „Við höfum fækkað um 200 manns og samdráttur hefur orðið t Atlantshafsfluginu. Þessar upp- sagnir og samdrátturinn eru til- raunir til að rétta úr kútnum," sagði Sigurður. Hann kvað augljóst að verulegur halli yrði á rekstrinum í ár, en of snemmt að nefna neinar tölur í því sambandi. Veltan yrði þó talsvert meiri, vegna hækkaðs olíuverðs og launahækkana meðal annars. „Við teljum að við séum ekki að fjarlægjast ísland og íslendinga með því að fljúga beint frá Evrópu til Ameríku án viðkomu hér," sagði Sigurður. „Aðalmarkmiö okkar er að þjóna landsmönnum sem allra bezt og þessi beinu flug verða þess ekki valdandi að erfiðara verði að komast leiðar sinnar til og frá landinu hvort heldur er vestur eða austur," sagöi Sigurður Helgason. Viö spurðum Sigurð hvað for- stjóri annars stærsta fyrirtækis landsins þægi í laun. Hann kvaðst ekki geta gefið upp tölur í því sambandi. „Þeir sem teljast í háum tekju- flokki borga aftur til ríkisins 75— 80% af launatekjunum, svo þú sérð að það getur verið dálítið af- stætt þegar talað er um tekjur manna." í sambandi við starfsmannatölur Flugleiða og launafjárgreiðslur sem birtust í síðasta blaöi verður að hafa í huga að þar er einungis reiknað með starfsfólki hér á landi. Starfsfólk erlendis á síðasta ári var 492 segir í ársskýrslu Flug- leiða, en þar er starfsfólk á íslandi talið vera 1191. Samtals hefur starfsfólkið á síðasta ári verið 1083 talsins. Til viðbótar má og telja 90 starfsmenn Air Bahama, Hótel Esju með 75 manns, 48 starfs- menn Arnarflugs og loks 12 hjá Ferðaskrifstofunni Úrvali. Heildarlaun og launatengd gjöld Flugleiða heima og erlendis námu 8672 milljónum króna 1978 og höfðu hækkað um 60% frá árinu áður. Samkvæmt þessum tölum gætu Flugleiðir því allt eins verið í efsta sæti meðal íslenzkra fyrirtækja. Slippstöðin: GÓÐ AFKOMA „Við settum okkur markmið fyrir nokkrum árum. Fyrst að koma á kjölfestu í efnahagsmálum okk- ar, síðan að stækka fyrirtækið. Við gáfum okkur þá forsendu að stækka fyrirtækið upp í 550 manna starfslið. Allar okkar aðgerðir hafa farið fram eftir þessu plani," sagði Gunnar Ragnars, forstjóri Slipp- stöðvarinnar. 22

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.