Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1979, Qupperneq 23

Frjáls verslun - 01.12.1979, Qupperneq 23
þeim „stærstu ”? „Það sem ef til vill er erfiðast í þessum áætlunum okkar er að fá iðnaðarmenn til vinnu, einkum þó stálsmiði. Einn stálsmiöur í vinnu þýöir venjulega að við getum ráðið rafvirkja, trésmið, vélvirkja og verkamann ásamt honum. Við höfum því orðið að láta smíöa ýmsa hluta og heilu skrokkana annars staðar," sagði Gunnar. Hann kvað skipaviðgerðir í stöðinni sífellt aukast, en nýsmíðar hafa tiltölulega dregizt saman. Árið 1978 kom vel út hjá Slipp- stöðinni. Velta fyrirtækisins var á 4. milljarð króna. Gunnar kvað erfitt að gera sér grein fyrir ná- kvæmum ágóða fyrirtækisins, en 500 milljónir hefðu verið lagðar í varasjóð og hluthöfum greiddur 10% arður. Verkefni næsta árs hafa verið tryggð og kvað Gunnar útlit fyrir mikla athafnasemi í Slippstöðinni árið 1980. Búið er að semja um smíði á tveimur litlum togurum samkvæmt teikningum og hönnun þeirra Slippstöðvarmanna fyrir Skagstrendinga og Húsvíkinga. „Við erum þjónustuaðili, en ekki einokunarhringur” Erlendur Einarsson forstjóri SÍS í 25 ár „Ég svara því algjörlega neit- andi að Sambandið sé einhvers konar auðhringur í íslenzku þjóð- félagi", sagði Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS í stuttu samtali við Frjálsa verslun. Erlendur hefur stjórnað stærsta fyrirtæki landsins í aldarfjórðung nú um áramótin, en hann tók við starfi af Vilhjálmi Þór um áramótin 1955 og hafði áður verið forstjóri Samvinnutrygginga. „Auðvitað hef ég heyrt þær raddir, sem telja okkur vera of víða. Hvað má SÍS eiginlega vera lítið til aö þessar raddir heyrist ekki? Mér er spurn. Þetta á ekki við nokkur rök að styðjast. Hér er fyr- irtæki fólksins í byggðum landsins og komið til af nauðsyn. Við erum þjónustuaðili við þetta fólk og ætl- um okkur ekki annað hlutverk". Erlendur Einarsson kvað sjáv- arafuröadeild langumfangmestu starfsemi Sambandsins. Fyrstu 9 mánuði þessa árs var velta SÍS 70.4 milljarðar og hafði hækkað um 60% miðað við fyrstu 9 mánuði ársins 1978. Erlendur kvað hlut SÍS í fiskiðnaði fara vaxandi. Velta sjávarafurðadeildar var um 20 milljarðar þessa fyrrgreindu mán- uði. Næstar koma innflutnings- deild og búvörudeild og eru nokk- uð til jafn stórar. „Ég tel að mikið sé enn ógert í að bæta verzlunina í landinu og held að það sé nú brýnasta verk- efnið. Þar er mikið átak framundan hjá SÍS. Þróun verzlunar í dreif- býlinu er sú að forsenda fyrir henni er í raun algerlega brostin". FV spurði Erlend um hvað for- stjóri stærsta fyrirtækis lands- manna þægi í laun. „Hjá okkur Samvinnumönnum eru engin launungarmál um það fremur en annað. Varðandi laun er tekið miö af launum bankastjóra Seölabankans. Að auki á ég sæti í stjórnum ýmissa fyrirtækja, sem Sambandið á aðild að og þigg þar einnig nokkur laun", sagði Er- lendur að lokum. 23

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.