Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1979, Blaðsíða 49

Frjáls verslun - 01.12.1979, Blaðsíða 49
sjóöa landsins og auðvitað hjálpa þeir viðskiptavinum hvors annars eftir mætti." ísal og Sparisjóðurinn eiga við- skipti ,,í talsverðu umfangi" og sagöi Guðmundur að þau viðskipti hefðu gengið vel í alla staði. Iðnaðarbankinn er næst stærsti bankinn í Hafnarfirði sé miðað við innlán. Þau voru á árinu 1978 870 milljónir króna en í ár stefna inn- lánin í 1.500 milljónir. Jóhann Egilsson, útibússtjóri, kvað fyrirtæki í Hafnarfirði mörg hver eiga við fjárhagserfiðleika og vaxtabyrði að stríða, svo sem fyrirtæki annarsstaðar á landinu. En þó væru alltaf traust fyrirtæki inni á milli. „Verslunarfyrirtæki hafa átt við erfiðar hækkanir að stríða og iðn- fyrirtæki hafa fengið að kenna á því að viðskiptamenn þeirra standa ekki í skilum. Þannig er þröngt í búi hjá flestum fyrirtækj- um því að þetta er allt keðjuverk- andi." Jóhann sagói ennfremur að samkeppni við sparisjóðinn væri fyrir hendi og hann teldi að bilið á milli sparisjóðsins og annarra banka væri stöðugt að minnka. Samvinnubankinn er sá þriðji í röðinni. Innlán hjá honum á árinu 1978 námu 542 milljónum króna og hafði sú upphæð vaxið um 40% til loka nóvembermánaðar. Þorkell Jónsson, útibússtjóri, sagði að engin fyrirgreiðsla væri fyrir utanaðkomandi fólk og fyrir- tæki í Samvinnubankanum. Útvegsbankinn er minnsti banki Hafnfirðinga enda þeirra yngstur, og hefur aðeins starfað í eitt ár. Innlán til bankans frá desember 1978 til desember þessa árs voru 118 milljónir króna, þar af 30 milljónir á gjaldeyrisreikningum en Útvegsbankinn er eini bankinn í Hafnarfirði sem hefur gjaldeyris- deild. Gunnar Gunnarsson, útibús- stjóri, lét svo um mælt að Hafn- firðingar væru hættir að fara til Reykjavíkur til að afla gjaldeyris. Um 30 gjaldeyrisumsóknir hafa verið afgreiddar að meðaltali á dag en aftur á móti væri gjaldeyrir af- greiddur í einhverri mynd 100 sinnum dag hvern. ísal skiptir að mestu leyti við aðalbanka Landsbankans í Reykjavík. Þó er um helmingur launareikninga starfsmanna Ál- versins í bönkum í Hafnarfirði sem skiptist þannig. Hlutur Ssj. Hf. er um 43%, hlutur Samvinnubankans 3.4% og hlutur Iðnaðarbankans 4%. Þessar tölur eru fengnar úr skýrslu Álversins á 10 ára afmæli félagsins nú í ár. Hlutur banka í Kópavogi og Reykjavík var þannig um 50%. Áður en þessu greinarkorni lýk- ur er rétt að geta þess að skoðun þeirra manna er rætt var við, á því hvort Hafnfirðingar geymdu fé sitt að einhverju leyti í bönkum í Reykjavík voru skiptar. Allt frá því að vera ,,ekki umtalsvert" upp í „verulegt" og jafnvel um 30% sparifjár bæjarbúa. „Kaupfélag Hafnfirðinga er á uppleið” Spjailað við Örn Ing- ólfsson, kaupfélags- stjóra í Hafnarfirði. Kaupfélag Hafnfiröinga (KfH) var stofnað árið 1945 og rak þá þrjár verslanir í Hafnarfirði. Frá ár- inu 1947 til 1976 gegndi Ragnar Pétursson stöðu kaupfélagsstjóra en þá tók Bogi Þórðarson við og gegndi starfinu fram á síðasta ár er Örn Ingólfsson settist í kaupfé- lagsstjórasætiö. Árið 1955 opnaði KfH eina fyrstu kjörbúð landsins við Strandgötuna og á næstu árum var ráöist í frekari byggingaframkvæmdir á þeirri lóð og þar eru nú aðalstöðvar kaupfé- lagsins. Þá má nefna að árið 1963 hóf KfH rekstur kjörbíla en það var alger nýjung hérlendis á þeim tíma. Nú rekur kaupfélagið 5 versl- anir, þar af þrjár matvöruverslanir í örn Ingólfsson, kaupfélagsstjóri, ásamt samstarfsfólki. Hafnarfirði og Garðabæ. I Norðurbænum, eöa við Mið- vang, rekur KfH eina af matvöru- verslunum sínum en þar er nú verið aó reisa stórt verslunarhús á einni hæð þar sem verða mun vörumarkaður. Ráðgert er aö taka húsið í notkun næsta sumar. FV innti Örn Ingólfsson eftir því hvernig rekstur kaupfélagsins hefði gengið. „Reksturinn gekk erfiðlega á síðasta ári og kom það aðallega til af rekstrarerfiðleikum undanfar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.