Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1979, Síða 51

Frjáls verslun - 01.12.1979, Síða 51
„Við erum með 50% markaðshlutdeild” segir Anton Bjarnason, forstjóri Glerborgar Glerborg hóf starfsemi sína árið 1972 en starfssvið fyrirtaekisins hefur ávallt verið framleiðsla ein- angrunarglers. Stofnandi fyrir- tækisins var Bjarni Kristinsson, en hann hafði áður verið einn af eig- endum íspan í Kópavogi. Bjarni var að vissu leyti brautryðjandi á framleiöslu einangrunarglers eins og það er framleitt í dag. „Tvöföld líming“. Á síðasta ári hóf Glerborg fram- leiðslu á einangrunargleri með nýrri aðferð sem kölluð hefur verið „tvöföld líming''. Þegar þessari aðferð er beitt við framleiðslu glersins er tryggt með sérstöku lími að enginn raki komist inn á milli rúðanna en sú hætta hefur fylgt tvöföldum rúðum eftir því sem aldurinn hefur færst yfir þær. Þannig verður ending rúðanna mun betri heldur en áður var. Glerið sjálft er flutt inn frá Sví- þjóð að mestu en einnig að iitlu leyti frá Englandi og Belgíu. Þegar rúðurnar eru síðan komnar til Glerborgar eru þær skornar niður eftir nákvæmum málum og límdar saman. Þessi „tvöfalda lím" aðferð er nú að ryðja sér til rúms í allri fram- leiðslu einangrunarglers og Gler- borgarmenn voru fljótir að tileinka sér þessa nýju tækni. Þegar þeir hófu framleiðslu, samkvæmt þessari aðferð, höfðu aðeins al- stærstu aðilar á þessu sviöi á Norðurlöndum tekið aðferðina upp. Fyrir utan glerframleiðsluna sel- ur Glerborg ísetningarefni ýmis- konar, auk lítilsháttarframleiðslu á hitakútum fyrir rakaeyðingarefni, sem mest megnis hafa verið seld út fyrir landsteinana. Hörð samkeppni. Anton Bjarnason, forstjóri Gler- borgar, kvað vera um harða sam- keppni að ræða í þessari grein. Nú starfa 5 fyrirtæki að framleióslu einangrunarglers hérlendis og sérstaklega kemur samkeppnin fram yfir vetrarmánuðina. ,,Við teljum okkur þó ekki vera í beinni samkeppni við hina aðilana því aö að okkar mati erum við að selja aðra vöru en þeir. Við erum með upp undir 50% markaðshlut- deild í sölu einangrunarglers en markaðurinn er um 100 þúsund fermetrar á ári. í ár framleiðum við um 45 þúsund m . Reksturinn gengur prýðilega. Anton sagði einnig að rekstur- inn hafi gengið prýðilega á þessu ári. Á síðustu árum hafi verið stöðug aukning í sölu eða 14—18% að meðaltali á ári. Stærsta stökkið mun hafa verið á milli áranna 1974 og 75 en þá jókst framleiöslan um 48%. „Við erum þannig mjög vel í stakk búnir enda með fullkomn- ustu tæki sem völ er á og tæplega 30 góða starfsmenn." Einangnin gegn hita, etdi, kulda og hljóöi, auðveltí uppsetningu. Algengustu stærðir ávallt fyrirliggjandi. BT BIWTL V Lækjargtttu 34, Hafnarfir&i sími 50975 ROCKWOOL Spamaður á komandi árum

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.