Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1980, Side 13

Frjáls verslun - 01.12.1980, Side 13
Á að vera samkeppni um brunatryggingar? Samvinnutryggingar auglýsa hugsjónir einkaframtaksins Auglýsingar Samvinnutrygg- inga í sjónvarpi að undanförnu, þar sem fyrirtækið leggur til að brunatryggingar húsa verði seldar á frjálsum markaði, eins og flestar aðrar tryggingar, hafa vakið mikla athygli. Annarsvegar vegkja þær athygli vegna þess, að fæstir ís- lendingar hafa hugsað ýkja mikið um brunatryggingar húsa sinna, fyrr en bruni hefur orðið, hinsveg- ar hafa þær vakið athygli vegna þess að þar er verið að auglýsa skoðanir og slíkt hefur ekki oft verið gert hér á landi. Helsta dæmi um það eru auglýsingar Verslun- armannafélags Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og auglýsingar Vinnuveitendasambandsins ný- lega. Auglýsingar um skoðanir Þær auglýsingar voru birtar í blöðum, en nú er það sjónvarp. Ein af ströngustu reglum um aug- lýsingar er bann við pólitískum auglýsingum. Þessar auglýsingar Samvinnutrygginga eru ekki flokkspólitískar, en vissulega eru þær pólitískar. Ekki verður hjá þeirri hugsun komist að ekki verði komist langt á þessari braut áður en einhver reiðist. Hér takast á ríkisfyrirtæki, Brunabótafélag ís- lands, stofnun Reykjavíkurborgar, Húsatryggingar Reykjavíkur og Samvinnutryggingar G.T. sem eru samvinnufyrirtæki. Það er sam- vinnufyrirtækið, sem að þessu sinni berst fyrir einkaframtakinu og gegn hvers kyns einokun. Það eru vissulega sterk rök, sem mæla gegn því að það sé lögbundið hver má og má ekki tryggja hús í land- inu. Ef við hugsum þetta mál aðeins lengra frá auglýsingasjónarmiði, er ekki alveg víst að samvinnu- hreyfingin yrði hrifin, ef aðrir réð- ust að einokun hennar á einhverju sviði. Tökum sem dæmi, ef Smjör- líki hf., sem ræður yfir tækjum til gerilsneyðingar, færi að auglýsa gegn einkaleyfi Mjólkursamsöl- unnar, sem í krafti þess hefur ein- okun á vinnslu og dreifingu mjólk- ur á öllu Suður- og Vesturlandi. Eða ef einstaklingar færu að aug- lýsa gegn afurðasölukerfi land- búnaðarins, sem víða er raun- veruleg einokun kaupfélaga. Vel kann að vera að þaö væri rétt- mætt, og það er ekkert vandamál, fyrir þá aðila, sem hér hafa verið nendir, að auglýsa sínar skoðanir, til að koma þeim á framfæri, en hvað yrði þá um skoðanir þeirra, sem ekki hafa bolmagn til að kynna þær í sjónvarpi? Núverandi kerfi trygginga Þegar hugað er að innihaldi auglýsinganna verður málið engu einfaldara. Það sem um er að ræða er að Samvinnutryggingar hafa lagt til atlögu við núverandi kerfi í tryggingu húsa, sem fyrir- tækið telur úrelt einokunarkerfi, sem ekki þjóni hagsmunum borg- aranna. Bruno Hjaltested, aðstoð- arforstjóri Samvinnutrygginga segir að af þessu kerfi leiði að hús 13

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.