Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1980, Qupperneq 15

Frjáls verslun - 01.12.1980, Qupperneq 15
um um brunavarnir frá 1954 að sveitarfélögum utan Reykjavíkur sé heimilt að semja við eitt trygg- ingafélag eða fleiri um bruna- tryggingar á húseignum í umdæmi sínu. Framkvæmdin á máli þessu hef- ur verið þannig að samningar hafa verið gerðir til fimm ára í senn. í lögum um Brunabótafélagið eru ákvæði um það hvað sveitarfélag skuli gera, ef það vill tryggja ann- arstaðar. Þar segir: „Stjórn bæjar- og sveitarfélags getur leitað til stjórnar Brunabótafélagsins og óskað eftir því að fá endurskoðun eða breytingar á iðgjaldagreiðsl- um eða öðrum kjörum varðandi brunatryggingar fasteigna í bæjar- og sveitarfélaginu. Náist ekki samkomulag um samninga innan tveggja mánaða, frá því að ósk kom fram um endurskoðun eða breytingar á tryggingakjörum, er hlutaðeigandi bæjar- og sveitarfé- lagi heimilt að segja sig úr Bruna- bótafélaginu með 6 mánaða fyrir- vara, miðað við 15. október ár hvert." Af þessu sést að það er þungt í vöfum að ætla að skipta um trygg- ingafélag. En þar með er sagan ekki öll sögð. Að sögn forystu- manna Samvinnutrygginga er fjöldi sveitarfélaga háður Bruna- bótafélaginu fjárhagslega, þar sem félagið er mjög vel statt fjár- hagslega og hefur lengi veitt sveitarfélögum lán til reksturs og framkvæmda. Nú er það ekkert leyndarmál að flest sveitarfélög standa höllum fæti fjárhagslega og mega því illa við að missa upp- sprettu fjármagns. Fjármagn Brunabótafé- lagsins mikilvægt Ásgeir Ólafsson, forstjóri Brunabótafélagsins var að því spurður hvort félagið ,,keypti" sér viðskipti með lánafyrirgreiðslu. Hann segir aó það sé eðlilegt að félagið veiti fjármagni sínu til við- skiptamanna og það geti Bruna- bótafélagið í stærri stíl en önnur tryggingafélög, vegna sterkrar fjárhagsstöðu félagsins. Hann segir að Brunabótafélagið haldi 80 til 90% af iðgjaldatekjum í landinu og ávaxti það hér, þar sem félagið þurfi aðeins að endurtryggja er- lendis sem nemur 10 til 20%. Ás- geir leggur áherslu á að það fjár- magn, sem Brunabótafélagið lán- ar sveitarfélögum, liggi ekki á lausu annarsstaðar. Brunabótafélagið heyrir undir Tryggingaráðuneytið. Skipulag félagsins er þannig að því er stjórnað af fulltrúaráði 44 manna, sem eru einn fulltrúi úr hverju hæjarfélagi og einn frá hverju sýslufélagi. Þeir kjósa síðan þriggja manna stjórn fyrir félagið. Núverandi stjórn skipa Stefán Reykjalín, formaður en hann er einnig formaður stjórnar Slipp- stöðvarinnar á Akureyri. Aðrir í stjórn eru Friðjón Þórðarson, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Magnús H. Magnússon, alþingis- maður. þarna hafa því þrír stjórn- málaflokkar fulltrúa. Hefur samkeppnin verið gagnleg? Ásgeir Ólafsson telur fyrirkomu- lag húsatrygginga gott eins og það er. Hann segir að þrátt fyrir áróð- ursherferð Samvinnutrygginga í fyrra hafi þeir ekki náð neinum ár- angri og engu sveitarfélagi bætt við sig í tryggingu. Hann bendir á að minni og fjárhagslega veikari tryggingafélög gætu þurft að end- urtryggja meginhluta eða jafnvel allt erlendis, sem þýddi að það fjármagn færi út úr landinu og það myndi skapa verulegan vanda fyrir sveitarfélögin, ef þetta fjármagn hyrfi af markaðnum. Ásgeir Ólafsson leggur á það áherslu að Brunabótafélag íslands sé rekið með hagkvæmni í huga. Það hafi orðið fyrst tryggingafé- laga til að taka upp töluvinnslu 1952 og stöðugt sé ..passað upp á Parkinson". Ekki er auðvelt að kveða upp nein Salómonsdóm í slíkum mál- um, en augljóst virðist að hér tak- ast á þrjú fyrirtæki, með mismun- andi hagsmuni, sem virðast í grundvallaratriðum vel rekin. En reynsla okkar íslendinga undan- farin ár, bendir vissulega ekki til þess að einokun sé af hinu góða og rök Samvinnutrygginga vega þungt í þvf Ijósi. Að lokum verður að efast um að iðgjöld Brunabóta- félagsins hefðu lækkað skyndi- lega um 50% árið 1954, ef sam- keppni Samvinnutrygginga hefði ekki komið til og vafasamt að ið- gjöld hefðu lækkað jafnt og þétt síðan, ef engin samkeppni hefði verið. Ifv 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.