Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1982, Blaðsíða 8

Frjáls verslun - 01.03.1982, Blaðsíða 8
I FRETTUNUM Nýtt útflutnings- fyrirtæki Islenska Markadsverslunin hf I desember á síðasta ári var í Reykjavík stofnað hlutafé- lagið íslenska Markaðs- verslunin. Fyrirtækið opnaði síðan skrifstofu aö Skúla- túni 4 í apríl sl. í frétta- tilkynningu frá fyrirtæk- inu segir að það muni beita sér fyrir auknum út- flutningi íslenskra fram- leiðsluvara og aukinni markaðshlutdeild þeirra á heimsmarkaði. Félagið hyggst ná markmiðum sin- um með nýstárlegum sölu- aðferðum og víðtækri kynn- ingarstarfsemi. [ stuttu spjalli við Frjálsa Verslun sagði Árni M. Jensson stjórnarformaður hins nýja fyrirtækis, að ýmislegt væri á prjónunum. Til að mynda mun (MV, eins og fyrirtækið er skammstafað, vera með sýningarbás á alþjóðlegri vörusýningu matvælafram- leiðenda sem haldin verður í París í haust. Þar mun [MV sýna og selja íslenskar framleiðsluvörur, annað hvort í umboði framleiðslu- fyrirtækjanna, eða þá að einstök fyrirtæki fái aðstöð á sýningarsvæði ÍMV. Síðast komu um 220.000 manns á þessa sýningu og er þetta því tilvalið tækifæri til að kynna íslenska framleiðslu. Einnig hefur (MV í bígerð að setja á stofn póstverslun er- lendis með íslenskar fram- leiðsluvörur. Hyggst fyrir- tækið dreifa þar al-íslensk- um pöntunarlista og senda síöan vörurnar beint til kaupenda gegn póstkröfu eða bankakröfu. Ekki mun fyrirtækið þó eingöngu vera með útflutning, því (MV hef- ur fengið einka-umboð á (s- landi fyrir hinar þýsku Grandos matvörur, og hefur þegar hafið innflutning á þeim. Sverrir Norland A síðasta aðalfundi Versl- unarbanka fslands sem haldin var í Mars sl. var Sverrir Norland forstjóri Smith & Norland kjörinn formaður bankaráðs til næstu tveggja ára. Sverrir er fæddur 8. janúar 1927. Hann lauk prófi í rafmagns- verkfræði frá Massachusset Institute of Technology árið 1950. Fyrstu fjögur árin starfaði hann hjá Landssím- anum við verkfræðistörf. en réðst síðan til Paul Smith Arið 1956 geröist Sverrir meðeigandi og var fyrirtæk- inu þá breytt í hlutafélagið Smith og Norland. Sverrir varð þá framkvæmdastjóri og hefur verið það síðan. Sverrir hefur starfað mikið að félagsmálum og hefur hann setið í stjórnum fjöl- margra félaga kaupmanna og verkfræðinga. ( banka- ráði Verslunarbankans hef- ur Sverrir átt sæti í alls 6 ár, þar af 4 ár sem aðalmaður og 2 ár sem varamaður. Sverrir er giftur Margréti Norland og eiga þau þrjú uppkomin börn. Konur kaupfélags- stjórar Til skamms tíma hafði að- eins ein kona gegnt starfi kaupfélagsstjóra hjá Sam- bandskaupfélögunum og er það Sigrún Magnúsdóttir hjá Kaupfélagi Bitrufirðinga. Nú verður hins vegar nokkur breyting þar á, því um þess- ar mundir eru tvær konur að taka við störfum kaupfé- lagsstjóra. Hinn 11. júní sl. tók Jörgína Jónsdóttir við starfi kaupfélagsstjóra hjá Kaupfélagi Tálknfirðinga, Sveinseyri. Jörgína er 26 ára einstæð móðir úr Reykjavík, er meira að segja alin upp við Laugaveginn. Jörgína starfaði sem gjald- keri og bókari hjá kaupfé- laginu um þriggja mánaða skeið, áður en hún gerðist kaupfélagsstjóri. [ stuttu spjalli við Frjálsa Verslun sagði Jörgína að starfið væri aðallega fólgið í því að annast verslun kaupfélags- ins, en kaupfélagið er að mestu hætt annari starf- semi. Aðspurð um hag kaupfélagsins sagöi Jörgína að staða þess væri heldur bágborin um þessar mundir og myndi það verða helsta verkefni hennar að reyna að bæta reksturinn. [ Kaupfé- lagi Tálknfirðinga eru 87 fé- lagsmenn og starfa 7 manns hjá félaginu árið um kring. Um mánaðamótin júní-júlí tók Kristrún M. Waage við stöðu kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Hvammsfjarðar í Búðardal. Kristrún er Sam- vinnuskólagengin og hefur unnið ýmis störf, m.a. hjá Sambandinu og Kaupfélagi Hvammsfjarðar. Hið nýja starf Kristrúnar er mjög yfir- gripsmikið, enda er kaupfé- lagið með viðamikinn rekst- ur. Auk þess að vera með alhliða verslun, rekur kaup- félagið bíla- og búvélaverk- 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.