Frjáls verslun - 01.03.1982, Side 35
Iðnaðarbankinn
við Dalbraut
Iðnaðarbankinn við Dalbraut hefur tekið í notkun
viðbótarhúsnæði á Dalbraut 1—3 en útibú bankans
hefur verið staðsett í því húsi síðan 1971. Með þessari
viðbót, sem opnuð var til afnota í mars sl. stækkar
gólfflöt útibúsins í um 150 fermetra. Útibú Iðnaðar-
bankans í reykjavík eru þrjú talsins, vió Dalbraut, í
Miðbæ við Háaleitisbraut og í Fellahverfi í Breiðholti.
Auk þess starfrækir bankinn útibú á Akureyri, Selfossi
og í Hafnarfirði.
Sigurjón Sigurðsson, sem er útibústjóri á dalbraut,
sagði að þar störfuöu að staðaldri 5—6 manns. Úti-
búiö er í grónu hverfi og í nærliggjandi götum er miki
um stofnanir o íbúðir fyrir aldraðæa. Þess vegna er
stór hópu ellilífeyrisþegna í viðskiptamannahópi
bankans. Ellilífeyrir frá Tryggingarstofnun er í mjög
mörgum tilfellum lagður inn á sparisjóðsbækur,
þannig aö bankaútibúið verður þjónustuaðili í þessu
sambandi.
í næsta nágrenni við útibúið er iðnaðar- og versl-
unarsvæðið við Sundahöfn. Mörg fyrirtæki þar eru í
viðskiptum við Iðnaðarbankann á Dalbraut, em Sig-
urjón Sigruðsson sagði að iðnfyrirtæki víða um borg-
ina ættu viðskipti við útibúið. Hann bætti því við, að
viðhorf almennings til útibúa bankanna hefði breyst
áberandi mikið síðustu árin. Bankarnir hefðu legið
undir gagnrýni fyrir fjölgun útibúa, en nú óskaði fólk
eindregið eftir að fá bankaþjónustu í sín hverfi. Úti-
búin eru orðin nauðsynlegar þjónustustofnanir enda
annast þau milligöngu í fjölmörgum þáttum persónu-
legra viðskipta fólks, þó ekki sé nefnt annað en raf-
magnsreikmngarnir og afnotagjöld síma, sem fólk
greiðir yfirleitt í banka nú orðið.
Kópavogur
Breiðholt
Látiö kunnáttu-
mennina
smyrja bílinn á
smurstööinni
ykkar
SMURSTÖÐ
ESSO
STÓRAHJALLA 2, KÓPAVOGI
(Snjóllur Fanndal)
SÍMI 43430
35