Frjáls verslun - 01.03.1982, Page 83
Sumarbústaðamarkaðurinn
Fleiri hallast nú að félagslegu
bústöðunum en að byggja sjálfir
— tími hrófatildranna liðinn
Nú um hásumarleyfistímann,
þegar sem flestir nota sumarbú-
staði sína eða stéttarfélaga sinna,
datt okkur í hug að skyggnast lít-
illega inn í þróun þessara mála
síðustu árin. Það réði ekki síst þar
um að í vor hefur getið að líta
heldur fleiri auglýsingar um bú-
staði og lóðir til sölu, en undan-
farin ár svo við leituðumst m.a. við
að fá svör við spurningum svo
sem hvort markaðurinn væri orð-
inn mettaður, framboð lóða færi
hlutfallslega vaxandi eða hvort
hinir svonefndu félagslegu bú-
staðir hefði haft afgerandi áhrif á
hinn almenna markað.
Þrír fasteignasalar, sem blaðið
ræddi við, komust að nokkuð
svipuðum niðurstöðum. Sögðu
þeir að fyrir svo sem 15 til 20 árum,
hafi utanlandsferðir til sólarlanda
verið mun dýrari en nú og því
marga óað við þeim kostnaði.
Vegna þess hafi eftirspurn eftir
bústöðum eða lóðum undir þá
verið mjög mikil og spenna ríkt á
þessum markaði. Lá þá við að fólk
keypti lóðir hvar sem þær fengust,
einungis ef þær voru falar. Sum
þessara bústaða og lóða væru
hinsvegar illseljanleg nú, eóa eftir
að dró úr spennu á markaði og
framboð óx í kjölfarið.
79