Frjáls verslun - 01.03.1983, Side 15
menn í hljómplötuiðnaðinum til
aó hlusta á þá. Slíkt ævintýri er
að vísu ekki í uppsiglingu hjá
Mezzoforte, en þó er þar um að
ræða gífurlegar fjárhæðir, tak-
ist hljómsveitinni og umboðs-
mönnum hennar aö hasla
henni völl erlendis.
Dæmiö um Steinar hf. er eitt
dæmið um þaö, aö íslendingar
eru í ríkari mæli teknir að
hugsa út fyrir landsteinana og
áþreifanlegar framkvæmdir
eru nú komnar í kjölfar þeirra
hugsana. Tilraunir hafa verið
geróar meö aó selja vinnu ís-
lenskra listamanna til Japan og
Bandaríkjanna, og ýmislegt
mun vera aö gerast í þeim efn-
um þessar vikur. Jóhann
Helgason er orðið nafn sem
allmargir kannast við í Japan,
og Mezzoforte eiga ýmsa
möguleika í Norður-Evrópu.
Fleiri íslenskir listamenn munu
fylgja í kjölfarið, og ekki er
heldur ósennilegt að íslenskir
umboðsmenn geti innan tíðar
orðið umboösmenn erlendra
skemmtikrafta. Þegar þar aö
kemur verða íslendingar orönir
raunverulegir þátttakendur í
fjölþjóðlegum skemmtiiðnaði,
Steinar Berg ísleifsson. Reynsla
fengin af alþjóða poppmarkaði.
þar sem ekki skiptir lengur máli
hvert heimaland viðkomandi
manna er.
Útgerð skipa og flugvéla
erlendis
Um langt árabil hafa íslensk
fyrirtæki verið með skip og
flugvélar í ferðum víða um
heim, þar sem fluttar eru vörur
og fólk milli landa, sem ekki
tengjast íslandi á nokkurn hátt.
Pílagrímsflug Flugleiða er gott
dæmi um þetta, þar sem fyrir-
tækið er venjulegt fyrirtæki í
fjölþjóðlegum heimi flugsam-
gangna, og keppir í raun og
veru viö önnur fyrirtæki um all-
an heim um flutninga hvers
konar.
Skipafélög hafa haft og hafa
með höndum hliðstæð verk-
efni, misstór eftir atvikum.
Mörg íslensk kaupskip eru
lengi í förum milli hafna er-
lendis, og koma jafnvel ekki til
(slands nema endrum og sinn-
um. — Bæói í fluginu og í
skipaútgerðinni, er algengast
aö áhafnir séu íslenskar, en þó
er slíkt hreint ekki regla. Ýmis
frávik hafa veriö frá því, og
þegar svo er komið, er fremur
verið að afla verkefna fyrir dýr
og rekstrarfrek tæki, heldur en
aó verið sé aó finna íslending-
um vinnu erlendis. Starfsemi af
þessu tagi mun fara í vöxt á
næstu árum, og trúlegt er aö
þar verði ekki aðallega um aó
ræða stóru fyrirtækin. (slend-
Boeing 747 leiguflugvél Flugleiða á flugvellinum í Algeirsborg.
15