Frjáls verslun - 01.03.1983, Page 30
„Ég vil aö SAS verði stundvísasta flugfélag í heiminum eftir sex mán-
uði.“ Það var skipun til stöðvarstjórans á Kastrup.
manna. Fjárhagsstaða fyrir-
tækisins var ekki orðin mjög
alvarleg, en hefði orðið það
fljótlega ef ekki hefði verið
gripið í taumana.
FV: Getur þú lýst hvernig
andrúmsloftið var hjá fyrirtæk-
inu?
JC: Þaö verður best gert
með því að segja að talsvert og
vaxandi vonleysi hafi gætt
meðal starfsfólksins.
FV: Nú hefur þú á tiltölulega
skömmum tíma snúiö tap-
rekstri þriggja stórfyrirtækja í
hagkvæman rekstur sem skilar
arði. Hvernig nálgaðist þú það
verkefni að lagfæra rekstur
SAS?
JC: (fyrstu reyndi ég að gera
mér eins Ijósa grein fyrir rekstri
fyrirtækisins og innviðum þess
eins og frekast var kostur. Þaö
gerði ég m.a. með því að ræða
við starfsfólkið í hinum ýmsu
störfum og stöðum hjá fyrir-
tækinu. Þetta tók mig tvo og
hálfan mánuð. Þá hafði ég
fengið nokkuð góða mynd af
fyrirtækinu sjálfu. Eftir það
reyndi ég, meó aðstoð margra,
að fá eins glögga mynd af
markaðsstöðunni og þörfum
markaðarins eins og hægt var.
Þegar þessar upplýsingar lágu
fyrir var að ákveða hvers konar
stefnu ætti að taka. Hvaða
markmið ætti að setja fyrirtæk-
inu og hvers konar skipulag
hentaði því til þess að ná há-
marks árangri. Nýtt skipulag
var tekiö upp og meginmark-
mið þess var að ganga mjög
langt í því að færa ákvarðana-
töku til þeirra sem hæfastir
voru til þess að ákveða. Þannig
voru völdin í reynd færð frá
þeim sem voru efst í stjórnar-
píramídanum. Ég ákvað þessa
stefnu í samráði við stjórn
fyrirtækisins og er óhætt aó
segja að við höfum gengið
mjög langt í því að gera sem
flestar einingar sjálfstæðar.
FV: Hver var meginkjarni
þeirra markmiða sem sett
voru?
JC: Ég ákvað að ráðast ekki
á kostnaðarhliðina og skera
niður til þess að koma fyrir-
tækinu út úr tapinu, heldur
taldi vænlegra að reyna að
auka tekjur fyrirtækisins. Frá
árinu 1975 hafði stöðugt verið
unnið að því að skera öll út-
gjöld niður og halda öllum
kostnaði í eins miklum skefjum
og mögulegt var. Þetta hafði
leitt af sér minnkandi þjónustu
og í kjölfar þess minnkandi
sölu. Það var unnið að því að
gjörbreyta þessu og gera SAS
að flugfélagi sem fólk í við-
skiptaerindum kaus fremur en
önnurflugfélög ef það þurfti að
greiða fullt fargjald. Ástæðan
fyrir því að við einbeittum okkur
að þessu var sú að þarna var
markaður, öruggur markaður,
sem hafði sérhæfðar kröfur og
30