Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 48
Erlendis er sú skoðun uppi
meðal sérfræðinga, að „tölvumis-
notkun“ sé algengt og alvarlegt
vandamál í atvinnulífi, 1) en með
því orði eiga þeir oftast við fjár-
drátt. Er þetta stöðugt talið færast í
aukana með aukinni tölvunotkun.
Einnig er talið að mikið sé um
óupplýst afbrot af þessu tagi, og
þau rök færð, að misferli uppgötv-
ast einatt fyrir einskæra tilviljun,
eða fyrir kjánalega og óþörf mistök
fremjandans. Auk þess hafa menn
furðað sig á hversu hin uppgötv-
uðu tilfelli séu iðulega framin af
lítilli útsjónarsemi og klókindum.
Tölvan — tvíeggjað sverð
Magrir hafa haft gaman af að reyna að sjá
fyrir afleiðingar tölvubyltingarinnar. Um-
ræða um þau mál hefur að miklu leyti beinst
að spurningum varðandi friðhelgi einkalífs
og skyldum atriðum. En það er meira blóð í
kúnni. Hér er ætlunin að fjalla um eina
hættu, sem í Ijós hefur komið við notkun
tölva í verslun og viðskiptum, nefnilega
f járdrátt og þjófnað þar sem tölvu er beitt við
verknaðinn.
og spurt sjálfa sig undrandi hvað
kláru þjófarnir séu að gera. 2>
í mörgum löndum er ekki enn
farið að safna opinberri statistík
um tölvuglæpi, en í Bandaríkjun-
um hafa tölur verið nefndar, t.d.
621.000 dollara meðaltjón á tölvu-
afbrot árið 1979, 3) að óupplýst til-
felli væru 5 til 9 sinnum fleiri en
upplýst, og að líkindi á sakfellingu
Hér á landi höfum við, að því er virðist, verið laus við
vandamál af þessu tagi, og ef á annað borð skal um
þessa hluti fjallað, verður að styðjast við erlenda
reynslu. íslenskar aðstæður eru því ekki hafðar hér
sérstaklega í huga, og skal lesandanum látið eftir að
meta hvert erindi slík umfjöliun á, en ef til vill gæti
reynsla annarra kennt okkur eitthvað íþessum efnum.
væru47:1 afbrotamanninum í hag.
Kringum 1978 komu upp ca 100
misferlistilfelli árlega, 1) og ekki
hefur þeim fækkað síðan. Reynsla
Grein eftir:
Lúðvík Emil Kaaber
48