Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 54
il, að aldrei verður öllum misferlis-
möguleikum útskúfaö ef takast á
að reka fyrirtæki með hagnaði og
móðga ekki þann þorra fólks, sem
heiðarlegt er. Frá útlöndum fréttist
stöðugt um tölvumisferli innan
fyrirtækja, sem jafnvel einfaldarog
ódýrar varúðarráðstafanir hefðu
nægt til að hindra, en samt verður
að viðurkenna að hinn mannlegi
þáttur ræður, og alvarleg tilfelli
geta og hafa komið upp í mjög vel
reknum fyrirtækjum.
Tölvan er eins og hvert annað
tól að því leyti, að nota má hana til
Qantel
tölvubúnaöur
Lækning okkarvið
nærsýni í viðskiptalífinu
HAUKAR hf
GRANDAGARÐI 1b SÍMI 27544
fyrir neðan virðingu sína eða líti á
það sem feimnismál. En sú skylda
hvílir á þeim sem hafa ( huga þá
miklu hagsmuni sem í húfi geta
verið, og leitast við að gæta þeirra
sem best.
Sjálfsagt má endalaust deila um
hverslu alvarlegt vandamál tölvu-
misnotkun sé eða geti verið, því
ógerlegt er að telja kurl sem
ókomin eru til grafar. Þó má full-
yrð, að meira eða minna rök-
studdar ágiskanir erlendra manna
bendi til þess, að samfélögin hafi
ekki náð að snúa sér að vanda-
málinu á nægilega áhrifaríkan
hátt, og að stjórnunar- og eftirlits-
möguleikum sé oftlega fórnað á
altari notagildisins. Rekstur fyrir-
tækja hefur varla náð að samlag-
ast hinni öru þróun rafeindatækn-
innar, og þeir eru ekki margir
sem eru nægilega forsjálir til að
byrgja brunn sem ekki er vitað
hvort nokkur hafi dottið í.
Tilvitnanir:
’. A.D. Chambers: „Computer
Abuse and its Control”, EDP-
ACS, 6 nr. 6,1978 (U.S.A.)
2. B. Allen: ,,The Biggest Com-
puter Frauds: Lessons for
CPAs", Journal of Account-
ancy, 143, nr. 5 1977 (U.S.A.)
3. Congressional Record,
Proceedings and Debates,
96th Congress, 1st sess., 125,
nr. 7 bls. S726, 1979 (U.S.A.)
4. B. Allen: „Danger Ahead!
Safeguard your Computer",
Harvard Business Rewiew, 46,
nr. 6,1968 (U.S.A.)
5. N.N.: ,,Fraud that Went Acc-
ording to Program", Computer
Fraud and Security Bulletin, 3,
nr. 1,1980 (Sviss)
6. B.D. Colvin: „Computer Crime
Investigators-A New Training
Field", FBI Law Enforcement
Bulletin, 48, nr. 7,1979 (U.S.A.)
7. R. Jacobson: „Infiltrating the
System", Computer Fraud and
Security Bulletin, 3 nr. 1, 1980
(Sviss)
8. L.l. Krauss, A. MacGahan:
Computer Fraud and Counter-
measures. Prentice Hall, Inc.,
New Jersey, 1979, bls. 45—77
(U.S.A.)
9. Sama rit, bls. 80—81. □
ills eða góðs eftir atvikum. Mann-
fólkið ræður notkun þeirra en ekki
græjurnar sjálfar, og fullkomið ör-
yggi fæst aldrei þar sem mannleg-
ar verur eru að verki. Hin rétta af-
staða til tölvumisnotkunar hlýtur
að vera sú aö gera sér grein fyrir
áhrifum, möguleikum og takmörk-
unum tækninnar, og leggja fé í
varúðarráðstafanir að afloknu
raunsæju mati. Verslunar- og fé-
sýslumönnum er ekki tamt að
íhuga möguleika á svindli og svik-
um, og gæti jafnvel verið að sum-
um fyndist hugleiðingar um slíkt