Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 62
angrunar. Á meðal okkar er
fólk sem trúir því eins og nýju
neti að einn daginn mæti tölvur
til starfa, t.d. hjá Eimskip, bjóði
góðann daginn og snúi sér að
því að taka vinnuna frá hafnar-
verkamönnunum. Meðan sjálf-
skipaðir áróóursmeistarar
dæla svona hugmyndum í al-
mening, t.d. með því að blanda
saman mikrótölvu og tækni-
þræli (Robot) er ekki von á
góðu. Svo er það aðaldraugur-
inn: Atvinnuleysið sem tölvan á
að skapa. Á bak viö bönnin,
fordómana og nesjamennsk-
una lýsir alls staðar í gegn sá
misskilningur, að tölvan sem
allt hið illa muni hljótast af sé
ókomin — eitthvaó sem þurfi
aö reisa „kínverskan múr“ til
varnar gegn.
Tölvubyltingin er hins vegar
löngu um garö gengin og er
staðreynd. Sjúkrahúsin eru
morandi í tölvum sem hafa
lengt meðalaldur íslendinga á
síðustu árum uppí einn þann
lengsta í heimi, áratugur eða
meira er síðan tölvur voru
teknar í notkun í frystihúsum
og enn er manneklan að drepa
flest þau hús sem eitthvað
púður er í. Spila- og leiktækja-
kassarnir sem nú vernda
krakkana gegn óheilnæmum
áhrifum stressaðra foreldra á
framabraut, eru angi af tölvu-
byltingunni og þau tæki sem
kallast leiktölvur og eru nú í
mestu uppáhaldi hjá börnum
eru af sama meiði. (Tölvuspilin
telja sænskmenntaðir félags-
fræðingar aö sjálfsögóu vera
tilræði við þjóðfélagið og
nauðsynlegt að takmarka eóa
banna eins og tölvuspilakass-
ana). Að baki þessara for-
dóma, flestra, er einber skyn-
helgi þeirra ofstækismanna
sem ganga um í dularklæðum
félagslegrar umhyggju en eru í
raun og veru aö berjast gegn
því sem kallast frjálst þjóófé-
lag. Svona jafnaðarmennska á
sér það eitt markmið að koma í
veg fyrir að einhver geti orðið
ríkur.
Það eru einkum þau fyrirtæki
sem fást við sölu á míkrótölvum
sem þurfa aö taka mið af fé-
lagslegum hræringum, for-
dómum og öllu því sem þeim
fylgir. Framtíðin er því ekki
bara dans á rósum þróunar og
möguleika heldur einnig bar-
dagi við alls konar mannkyns-
frelsara og annað afturhald.