Frjáls verslun - 01.03.1983, Page 81
SENDIHERRA FER
í SÖLUFERÐ
Einar Benediktsson.
sendiherra í London og víð-
ar var nýlega í Nígeríu til að
Einar Benediktsson.
vinna að sölu á skreið
þangað. Ræddi Einar við
ráðamenn og gera útflytj-
endur sér góðar vonir um
starf hans. Jafnframt þessu
ræddi Einar við flugmálayf-
irvöld um áhuga Flugleiða á
áætlunarflugi til Nígeríu frá
Lúxemborg. Lýstu Nígeríu-
menn velvilja til slíks flugs
að undangengnum viðræð-
um við stjórnvöld í Lúxem-
borg. Á þetta er minnst hér
af því að ekki er langt síðan
íslenskir sendiherrar bein-
línis móðguðust yfir að
þurfa að sinna erindum sem
þessum. Á þessu er hins
vegar að verða mikil þreyt-
ing og hafa nokkrir sendi-
herrar lagt mikið á sig til að
koma á viðskiptum íslenskra
fyrirtækja erlendis. Einar
Benediktsson er utanríkis-
þjónustunni til sóma og
öðrum til fyrirmyndar hvað
þetta varðar.
)
Hrafn Bachman.
Hótel Selvör?
Þeir Bjarni Árnason og
Jón Hjaltason, félagar úr
veitingabransanum keyptu
fyrir um tveimur árum mikla
húseign aö Hringbraut 117 í
Reykjavík. Nú stendur til að
innrétta bygginguna, sem er
gamalt atvinnuhúsnæði og
kemur tvennt til greina:
Annars vegar 43 litlar leigu-
íbúðir eða 80 herbergja hót-
el. Er hugmynd þeirra að
hýsa stúdenta yfir vetrar-
mánuðina verði hótelkost-
urinn valinn.
INNFLUTNINGUR í HAFNARFJÖRÐ
Nýlega tók fyrirtækið
Dvergur h.f. í Hafnarfirði að
sér vöruafgreiðslu fyrir
Flugfrakt Flugleiða. Fyrir-
tækið sér einnig um vöruaf-
greiðslu fyrir Hafskip,
þ.e.a.s. geymslu og afhend-
ingu á innfluttum vörum.
Hefur þessi starfsemi Dvegs
farið ört vaxandi, ekki vegna
mikil innflutnings hafn-
firskra fyrirtækja heldur
vegna þess að sífellt fleiri
innflutningsaöilar beina
innflutningi sínum um Hafn-
arfjörð. Eru þeir þannig að
flýja yfirráðasvæöi Toll-
stjórans í Reykjavík, en
pappírsþákn embættisins er
orðið þvílíkt að viðskiptavin-
ir þess eyða orðið meiri tíma
í að leysa út vörur en að
selja þær. Á meðan her-
skarar Tollstjórans taka sér
iöulega tvo til þrjá daga til að
fjatla með innflutningsskjöl
tekur afgreiðsla þeirra að-
eins um eina klukkustund
hjá fógetanum í Hafnarfirði.
Það er orðið atriði til að
standast samkeppni að fá
vörurnar heim um Hafnar-
fjörð.
Hrafn Backmann
Vill kúnnann
frá Kringlumýri
Hrafn Bachman, kaup-
maður í Kjötmiðstöðinni
með meiru hefur byggt
myndarlegt hús við Sigtún 9
í Reykjavík. Sigtún liggur að
einni helstu umferðaræð
borgarinnar, Kringlumýrar-
braut, en er lokað í þann
endann til að takmarka um-
ferð. Hrafn sækist nú stíft
eftir því að þessi endi Sig-
túns verði opnaður. Ástæð-
an er sú að ÁTVR vill kaupa
hús hans, m.a. fyrir nýja
áfengisútsölu en með því
skilyrði að Sigtún verði opið
í báða enda.
Hvernig á að
græða á
verslun
Tveir kaupmenn hittust á
förnum vegi, báðir eru með
hverfiskjörbúðir í Reykjavík.
Jæja þá veit maður hvernig
á að fara að því að reka ný-
lenduvöruverslun með
öruggum hagnaði, sagði
annar þeirra: Minnka vöru-
valið og vera eingöngu með
eina tegund af hverju,
greiða starfsfólki nákvæm-
lega eftir kjarasamningum,
einnig verslunarstjórunum,
jafnvel þótt það kosti enda-
laus starfsmannaskipti og
stórminnki þjónustuna við
kúnnana, auglýsa lítið eða
ekkert, hafa engar áhyggjur
af samkeppni, láta verð-
kannanir lönd og leið, hafa
búðina nógu gamaldags og
Ijóta o.s.frv. o.s.frv. Eftir árið
situr maður uppi með
miljónahagnað. Ja, hver
andskotinn, sagði hinn,
þetta er rétt hjá þér ég sá
það í þlöðunum um daginn,
— eigum viö ekki að drífa í
þvi að stofna kaupfélag, eftir
þessu að dæma er greini-
lega pláss fyrir eitt í viðbót í
Reykjavík og nágrenni.
81