Frjáls verslun - 01.03.1985, Síða 86
State var lokað á reiða sparifjár-
eigendur sem stóðu uppi slyppir
og snauðir að þvi er virtist.
Home State sparisjóðurinn var
„tryggöur", þótt ekki væri þaö af
alrikisstjórninni. Menn þjuggust
viö að aðeins væri timaspurning
hvenær opnað yröi aftur og spari-
fé greitt út með „tryggingafénu".
En þá brást kerfið.
Alls eru tugir sparisjóða i Ohio
tryggðir á sama hátt og Home
State. Viðskiptavinir þeirra sáu
enga ástæðu til að hafa meiri trú
á sinum bönkum en þeir sem
höfðu frétt af sparifé sinu i hönd-
um svikahrappa i Flórida. Þótt
hinir sparisjóðirnir hefðu fjárfest
af meira viti en Home State þá lá
spariféö ekki á lausu þegar við-
skiptavinir komu óttaslegnir til að
taka ut peningana sina. Allir voru
sjóðirnir „tryggðir" af sama aðil-
anum, sem gat engan veginn
komið til móts við þarfir þeirra all-
ra i einu, enda hafði enginn búist
við að Ohio-búar misstu skyndi-
lega traust á sparisjóðum sínum
á þennan hátt. „Tryggingarféð“
RAFVÖRUR 51=
Laugarnesveg 52 — Síml: 68 64 11
fjárfesta hjá ákveðnu verðbréfa-
fyrirtæki i Florida. Eftir að hafa
kynnt sér bókhald fyrirtækisins
rækilega ákváðu forsvarsmenn
Home State að treysta þvi fyrir
peningum sparisjóðsins og
hugðu eflaust á þokkalegan
hagnaö.
Fyrir nokkrum vikum komst sá
kvittur á kreik að fyrirtækið i Flór-
ida væri litiö annað en nafnið eitt
og peningar sparisjóðsins langt
frá þvi að vera jafnöruggir og yfir-
menn Home State héldu. Við
nánari eftirgrennslan kom i Ijós
að bókhald fyrirtækisins hafði
veriö falsað til að sýna góða fjár-
hagsstöðu en i raun varfyrirtækiö
ekki túskildings viröi. Ekki var að
spyrja að viðbrögðum sparifjár-
eigenda. Þeir flykktust til að taka
út fé sitt en eðlilega átti Home
State erfitt með að standa viö
skuldbindingar sínar gagnvart
þeim. Lausafé sjóðsins var af
skornum skammti, enda var
stórfé bundiö i verölausu fyrirtæki
suöur i Florida og hægara sagt en
gert aö ná þvi aftur. Dyrum Home
dugði ekki fyrir nema broti af þvi
sem til þurfti.
Þegar upp var staðið voru tugir
sparisjóða lokaðir sökum fjár-
skorts vegna þess aö einn þeirra
haföi fjárfest heldur glannalega.
Borgarafundir voru haldnir og
reiöir sparifjáreigendur hótuðu
öllu illu ef ekki yröi að gert. Smám
saman tókst þó aö útskýra málin
og útvega nægilegt fé til að borga
þeim sem treystu ekki sjóðunum
þrátt fyrir útskýringar. Aö tveimur
vikum liðnum höfðu allir sjóðirnir
verið opnaðir aftur — allir nema
Home State sem kom vandræð-
unum af staö. Forráðamenn hans
hafa nú verið kærðir fyrir athæfi
sitt.
Sálfræðin
Margir hafa velt þvi fyrir sér
hvernig unnt var að narra þaul-
vana fjármálamenn til aö fjár-
festa i verölausu fyrirtæki eins
og gert var, en svar hefur ekki
fengist enn. Nú stendur yfir rann-
sókn á viðskiptum Home State
og Flórida-fyrirtækisins og þá
ekki síst á endurskoðendum
þeirra siðarnefndu sem fölsuöu
reikninga fyrirtækisins.
Annað atriöi sem meira er rætt
um er að „kreppan" i Ohio orsak-
aðist fremur af sálfræöilegum en
efnahagslegum ástæöum. Það
var ekki röng fjárfesting sem slik
sem kom atvikakeðjunni af stað,
heldur sú staöreynd að um hana
fréttist. Fjárfestingin sjálf átti sér
stað fyrir mörgum mánuðum, en
það var ekki fyrr en litil útvarps-
stöö hóf að draga i efa góða fjár-
hagsstöðu Flórida-fyrirtækisins
sem eitthvað alvarlegt fór að ger-
ast.
Um leið og sparifjáreigendur
sáu ástæðu til aö óttast um fé sitt
og misstu trú á sparisjóðunum
sáust veikleikar i kerfinu. Sjóö-
irnir gátu ekki borgað allt féð út i
einu og þvi fór sem fór. Mannleg
viðbrögð komu skriðunni af staö,
en ekki fjárfestingin sjálf. Þar
með komast menn að þeirri
undarlegu niðurstöðu að undir-
staða kerfisins sé ekki siöur sál-
fræöileg en hagfræöileg. Og það
er nokkuð sem margir eiga erfitt
með að sætta sig við.