Frjáls verslun - 01.04.1985, Page 15
LAUNAKJÖR
LAUNAKJÖR FLUGMANNA
í fyrsta tölublaöi Frjálsrar
verslunar á árinu var fjallað um
launakjör lækna á íslandi. Þá
var boöaö að fjalla ætti um kjör
fleiri stétta og er nú komið aö
flugmönnum. Þeir eru oft taldir
meöal hátekjumanna og má
segja aö þar sé svipað uppi á
teningnum og hjá læknum:
Launin geta veriö á bilinu 30 til
120 þúsund krónur á mánuöi og
allt þar á milli. Veröur hér á eftir
gerö nokkur grein fyrir kjörum
flugmanna og auk þess rætt viö
Björn Guömundsson flugstjóra,
sem er formaöur samninga-
nefndar Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna, um flugmanns-
starfiö.
Félag íslenskra atvinnuflug-
manna fer meö samningamál
flugmanna hjá Arnarflugi, Flug-
leiöum, Flugfélagi Austurlands
og Flugfélagi Norðurlands og
Flugfélagiö Ernir á ísafirði hefur
einnig sótt um formlega aöild
aö félaginu. Mörg önnur félög
og fyrirtæki stunda flugrekstur
hérlendis og nægir þar aö nefna
flugskóla og leiguflugsfyrirtæki,
en kjör starfsmanna þeirra eru
oftast ákveðin meö beinum
samningum vinnuveitenda og
starfsmanna.
Flugmenn verða að kunna
nákvæm skil á öllum
tækjum og vita á stundinni
hvernig bregöast skal
viö vandamálum.
Allir íslenskir rikisborgarar
sem hafa leyfi til að stunda at-
vinnuflug geta gerst félagar í FIA.
Þeir einir geta þó átt aöild aö eft-
irlaunasjóöi félagsins sem greiöa
þangaö tilskilin iögjöld og fá um
leiö félagiö til aö annast kjara-
samninga sina. Til skamms tima
hafa litlu flugfélögin ekki kosið
milligöngu FIA enda þýöir þaö um
11 % hækkun launaútgjalda
vegna iðgjalda i lífeyrissjóðinn og
trúlega einnig nokkra launa-
hækkun hjá flugmönnum þeirra.
Launajöfnunarstefna
Launakerfi flugmanna Flug-
leiöa og Arnarflugs er í raun
byggt upp á mjög einfaldan hátt.
Byrjunarlaun eru kr. 31.045,-
fyrstu 3-6 mánuðina en hækka i
tæplega 50 þús. þegar flugmaöur
hefur störf sem fullgildur flug-
maöur. Siöan hækka þau á
hverju ári i 25 ár þegar toppnum
er náö. Laun flugstjóra eru
15