Frjáls verslun - 01.04.1985, Page 19
ennþá.
Flugkennari hefur kringum 500
krónur fyrir timann og getur hann
nánast kennt svo lengi á dag eöa
á mánuöi sem hann vill. Sagt
hefur þó verið aö starf flugmanns
hjá þessum litlu flugfélögum á ís-
landi sé eitt hiö erfiðasta i heimi.
Hér séu skilyrði og allar aöstæö-
ur þannig að óvæntir hlutir og
erfiðleikar séu stööugt aö koma
upp og þvi öðlist menn mikla
reynslu af starfinu þar. Reyndar
má segja þaö um innanlands-
flugið í heild, hjá Flugleiöum sem
öörum aö þaö sé einn besti
reynsluskóli sem flugmenn geti
fengiö og þeir sem hafi stundað
það i nokkurn tima séu færir i
flestan sjó, ef svo má aö oröi
komast um flugmenn.
Engin mistök
Flugmenn þessir sinna líka
iöulega sjúkra- og neyöarflugi. Er
þá ekki spurt um tíma eöa veður,
sé þess nokkur kostur er feröin
farin og treyst á góö tæki til hins
ýtrasta. Á sama hátt má segja aö
frumstæö skilyröi á mörgum flug-
völlum reyni oft á þol þessara
starfsmanna i fluginu, þaö getur
veriö hart aö þurfa aö snúa viö
þegar yfir flugvöll er komið þar
sem ekki sér niður en mögulegt
væri aö lenda ef fleiri flugleiö-
sögutæki væru til staðar.
í lokin má draga upp þá niður-
stööu aö flugmannsstarfiö á ís-
landi sé oft erfitt starf og aö til
flugmannsins eru ótvirætt gerðar
miklar kröfur um kunnáttu og
hæfni. Gangi allt vel og komi ekki
óvæntir hlutir upp má segja aö
kjörin séu sæmileg, dágott fri og
kaupið viðunandi. En i þessu
starfi má ekki gera mistök, þaö
eru kröfur sem flugrekstraraöilar
og farþegar gera til flugmanna.
Og fyrir þaö þarf aö borga.
„Viö höfum þokka-
legar tekjur”
— segir Björn Guðmundsson
formaður samninganefndar FÍA
Alþjóðasamband flugmanna
hélt nýverið árlegan fund sinn i
Montreal í Kanada. Sóttu fund-
inn héðan þeir Frosti Bjarnason
formaöur Félags islenskra at-
vinnuflugmanna og Björn Guö-
19