Frjáls verslun - 01.04.1985, Page 21
staöhæft aö hæfni flugmanns
sem reykir minnkar um 15 til
20% til aö sinna starfi sinu sem
skyldi og hæfni þess sem vinnur
með honum í stjórnklefanum, en
reykir ekki, minnkar svipað. Var
lagt til aö flugmönnum yröi bann-
aö aö reykja 8 timum fyrir flug-
ferö og má bera þetta saman viö
reglur um áfengisneyslu en okk-
ur er bannað að neyta áfengis 18
timum fyrir flugferö.
Ef þaö er Ijóst aö reykingar
hafa svona mikil áhrif á hæfni
flugmanna vaknar sú spurning
hvort ekki sé rétt aö banna flug-
mönnum algjörlega aö reykja."
Nú virðist 75 til 95 klukku-
stunda flugtími á mánuöi ekki
langur, er hann svipaöur i öörum
löndum?
„Hann er nokkuð svipaöur i
þeim löndum sem viö þekkjum
best til í, vakttíminn 175 klukku-
stundir og flugtiminn frá 75 til 95
tímar á mánuöi. Hjá félögum i
Bandaríkjunum sem ég þekki til
er lágmarksflugskyldan 58 til 65
timar á mánuöi og siðan mega
þeir bæta viö nokkrum timum
þannig að heildarflugtiminn getur
náö 78 til 85 timum og fyrir
þessa umframtima fá þeir þá
greitt hátt kaup. Á Noröurlöndun-
um og i sumum Evrópulöndum
eru kjarasamningar byggöir upp
á svipaöan hátt og hjá okkur,
vakttimi og flugtimi svipaöur og
greidd föst mánaðarlaun. Þó eru
islenskir flugmenn meö töluvert
lægri laun en almennt gerist í
Evrópu.“
Úthvíldir
Er ekki talið rétt vegna öryggis
aö flugmenn fljúgi meira á mán-
uði?
„Nei, og þessi vinnuskylda
okkar er nokkuð rúm miðaö viö
ýmis önnur lönd. Þær kröfur eru
geróar til flugmanna að þeir séu
vel úthvildir i starfi sinu. Flug-
menn veröa aö vera eins vel á
sig komnir andlega og likamlega
og unnt er og farþeginn á kröfu á
þvi að allt sé gert til aö tryggja
öryggi hans. Reyndar má segja
aö þeir sem helst berjast fyrir
öryggi farþeganna og þægindum
SUMARDEKK
NÝ/SÓLUÐ/NOTUÐ
VERIÐ
RADIAL DEKK VELKOMIN
^J0öuGvHeArGÐ. Á EITTLANDSINS
FULLKOMNASTA
HJÓLBARÐA VERKSTÆÐI
Hjólbarðaviðgerðir
DRANGAHRAUNI 1
HAFNARFIRÐI • SÍMI 52222 • 51963
HJÓLKOPPAR
Á ALLA BÍLA
ÓTRÚLEGT
VERÐ!