Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1985, Síða 48

Frjáls verslun - 01.04.1985, Síða 48
hreinlega ekki til. Viö kaupum kannski vélar til aö framleiöa ! nokkurn veginn þaö, sem viö vilj- ! um, en siðan breytum viö þeim j og lögum aö okkar verkefnum. | Stundum hafa fulltrúar erlendra ! vélaframleiöenda staöið gapandi i af undrun yfir þvi, hvernig vélum | þeirra hefur veriö breytt, þær eru j nánast óþekkjanlegar. Viö fyrir- i tækiö starfa vélsmiðir, rafvirkjar, trésmiöir og pipulagningamaður, margir hverjir i nánast fullu starfi viö lagfæringar og breytingar. En þegar velja þarf nýjar vélar veröum viö aö heimsækja fram- leiöendur og sýningar. Siðan er bara að spyrja um alla skapaöa hluti, fá aö sjá svipaöar vélar i gangi viö framleiðslu i verksmiöju o.s.frv. Þaö er líka höfuöatriöi aö sækja sýningar reglulega og fylgjast meö nýjungum. Ella dragast menn ótrúlega hratt aftur úr. Sýningar hjálpa mönnum lika mjög aö fá ferskar hugmyndir aó nýjum framleiösluvörum. Viö þurfum ekki endilega aö kaupa vélar á sýningunum til aö feröin komi aö gagni. Heldur geta menn fengiö hugmyndir um, hvernig eigi aö nýta vélar betur og til annarra hluta, en áður var vitað.“ Mjög hörð samkeppni „Gamla súkkulaöisteypuvélin okkar var keyrö frá klukkan hálf- átta á morgnana þar til hálftiu á kvöldin og náöi þá aö steypa 1.5 tonn. Til aö halda okkar mark- aöshlutdeild, t.d. i plötusúkkulaöi, þar sem hún er um 60%, urðum við aö auka afköstin. Meö nýju vélinni okkar steypum viö 3 tonn á 7 timum. Viö settum nýju vélina upp inni i húsi viö hlið þeirrar gömlu, án þess aö stööva þá gömlu. Heldur keyröum viö þær á timabili báöar hlið viö hliö. Siðan, þegar allt var tilbúiö, var sú gamla fjarlægð nánast á einni nóttu og sú nýja færö í hennar staö. Þetta varö aö gerast mjög hratt, þvi ef viö hefðum misst eitthvað af framleiðslu okkar út af markaðnum, eru margir um auöu plássin í hillunum. Þaö kostar mikla baráttu aö ná þeim til baka. Samkeppnin er ofboös- ! lega hörö. Nýja vélin er mjög fullkomin, öll tölvustýrö, m.a. er i henni tölvustýrt eftirlitskerfi, þannig aö mjög fljótlegt er aö finna bilanir, ef vandamál veröa til. Auk þess aö steypa venjulegt plötusúkkulaöi, getum við fram- leitt allar tegundir af fylltu súkku- laöi í vélinni. Ætlun okkar er að auka mjög á fjölbreytni i fylltu súkkulaöi á þessu ári. Gamla góöa Sírius Konsum súkkulaöiö, selst alltaf jafnvel, en viö hyggj- umst leggja til atlögu viö innflutta fyllta súkkulaöið. Raunar lítum viö þannig á, aö samkeppnin sé fyrst og fremst viö erlenda sæl- gætiö. Þetta er ekki sagt til aö gera litiö úr öörum framleiðend- um islenskum, siöur en svo. En þaö eru bara ekki þeir, sem viö erum aö berjast við um hillu- pláss. Þaö eru erlendu framleiö- endurnir." Hvernig veröa nýjar sælgætis- tegundirtil? „Þaö gerist kannski meö ýmsu móti. Viö höfum einmitt lagt mikla áherslu á vöruþróun og segja má, aö á henni byggist framtið í rannsóknarstofu matvælafræöingsins, en hann heitir Rúnar Ingibjartsson. 48

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.