Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1985, Síða 49

Frjáls verslun - 01.04.1985, Síða 49
Hér er Kristinn viö nýju súkkulaðisteypuvélina. Er hún mjög fullkomin og má meö henni framleiða venjulegt plötusúkkulaöi, fyllt súkkulaöi og súkkulaöikex svo dæmi sé nefnt. fyrirtækisins fyrst og fremst. Viö verðum að fylgjast vel meö, skoöa markaöinn, til aö vita hvað fólk vill helst fá og vera tilbúnir til aö bjóöa nýjar tegundir. Þaö er stundum sagt, aö liftími sælgætis sé á bilinu 3 til 7 ár. Hann virðist allmiklu lengri hérlendis, a.m.k. hjá Nóa-Sirius, en engu aö siður veröur aö huga vel aö vörubróun. Hjá okkur vinnur matvæla- fræöingur sem annast allt gæöa- eftirlit og hefur yfirumsjón meö nýjum vörum og þróun þeirra. Það er stórgaman stundum að sjá hann meö sín tæki og tól framkvæma vísindalegar athug- anir á þvi hvort þessi eöa hin blandan sé rétt, þvi einn verk- stjóranna okkar, Ingibergur Grimsson, sem hefur veriö hjá fyrirtækinu í yfir 40 ár, fram- kvæmir sinar athuganir á sömu blöndu meö því aö dýfa öörum köggli litlafingurs i blönduna og bragöa á. Ég held ég megi segja aö þeir séu ótrúlega oft sam- mála, visindamaöurinn og at- vinnumaðurinn. En hugmyndir veröa viöa til, viö stundum heföbundnar „iönaöar- njósnir", þegar viö förum á sýn- ingar erlendis og siöan er hug- myndin aö velkjast manna á milli i einhvern tima, þar til henni er hrint i framkvæmd, eöa varpað fyrir róða.“ Óhentugt húsnæði Nú er húsnæöi hér fremur þröngt og óhentugt, eru uppi áætlanir um stækkun? „Vissulega er húsnæöiö þröngt og óhentugt. Starfsemin fer fram á þremur hæöum og i kjallara, aö ekki sé minnst á óhagræðiö aö söludeild og lager fyrir tilbúna vöru, er til húsa aö Suðurlandsbraut 4. Þangað er tilbúna varan flutt á pöllum aö lokinni framleiöslu á hverjum degi. Þessi flutningur og umstafl- anir eru náttúrlega kostnaöar- samur og afar óhentugur. En viö völdum frekar þá leið aö treysta innviöi fyrirtækisins, framleiðsl- una, en aö byggja hallir. Hins vegar eigum viö hér stóra lóö, sem viö höfum greitt af öll gjöld og á henni eigum viö teikningu af húsi, sem hefur verið samþykkt fyrir löngu. Ef framtiðin og ham- ingjan veröa okkur hliöholl þá veröur húsbygging næsta verk- efniö." Hver er munurinn á þessu starfi og lögmennsku, eftir aö þú hefur öðlast þessa reynslu hér? „Hann er náttúrlega mikill. En þó má segja, aö i báðum störfum sé veriö aö leggja verk eöa vinnu undir dóm annarra. Ef viö mark- aössetjum nýja vöru hjá Nóa- Siríus eftir áralanga yfirlegu og stúderingar á bragói, útliti, um- búöum og sú markaössetning heppnast, þ.e. varan selst, þá erum viö að vinna málið. Dómur neytenda er okkur hagstæður. Nú, sama getur átt við t.d. um fjárfestingar á þessum óvissu- timum. I þær er farið eftir athug- anir og áætlanir, en munurinn er kannski sá, að dómurinn er okk- ur ekki birtur strax, við verðum að biða cálitið til að sjá hvort við höfum unnið eða tapaö. I öllum tilvikum er um mannlega þætti að ræða. Hér á fjöldi starfsmanna afkomu sina undir því, að fyrir- tækið gangi. Ég held aö mestu skipti, hvort sem er i lögmennsku eða i stjórnunarstarfi hjá fyrir- tæki, aö gera sitt besta, þannig getur þú allavega sinnt starfinu meö góöri samvisku." 49

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.