Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1985, Síða 70

Frjáls verslun - 01.04.1985, Síða 70
Afurðarlán úr Seðla- banka í viðskiptabanka Einn þáttur i víðtækum kerfis- breytingum, sem rikisstjórnin hefur haft á prjónunum, er að flytja svokölluö afurðalán (end- urkeypt lán Seðlabanka íslands) yfir til viöskiptabankanna. Tilurö þessara endurkaupa- viðskipta - en svo hefur afurða- lánakerfið verið kallaö - er aö leita allt aftur til kreppuáranna, en þá hóf Landsbankinn að end- urkaupa af Útvegsbanka sér- staka útgerðarvíxla. Upp úr seinni heimsstyrjöld- inni komst fast form á afurða- lánin og tekið var að lána út á landbúnaðarafurðir. Þessi lán gjörbreyttust við stofnun Seðlabanka íslands árið 1961. Tekin var upp bindi- skylda á allt sparifé í bönkum og þvi ariö til afuröalána. Lengst af hafa þrír stærstu bankarnir Landsbanki, Útvegs- banki og Búnaöarbanki séð aö langmestu leyti um afurðalánin. Á síðustu árum hefur þó hlutur lönaðarbanka aukist í afurða- lánum eins og í öðru. Upp úr 1970 var hafið að end- urkaupa afurðalán til iðnfyrir- tækja i beinum framleiðsluiön- aði. Sú ráðstöfun hefur stuðlað mjög að uppbyggingu almenns framleiðsluiðnaöar hér á landi. Þeirri stefnu hefur verið fylgt hjá Seðlabankanum að styðja við nýjar atvinnugreinar. Er þar helst aö nefna fiskeldi og raf- eindaiðnaðinn og ýmsa tækja- framleiðslu. Það er án efa, að stuðningur Seölabankans viö nýjar iðngreinar hefur orðið til mikillar hjálpar enda er starf- semi flestra fyrirtækja í þessum greinum blómleg. Reynslan hefur sýnt, aö af- urðalánakerfiö hefur á margan hátt veriö atvinnustarfsemi og efnahagslífi til framdráttar. En þrátt fyrir að margt hafi verið vel gert, voru innbyggöir gallar í afurðalánakerfinu yfir- gnæfandi og var því löngu orðiö timabært að afleggja það. Helstu gallar þessa kerfis voru þeir, að lánveitingar gengu næsta sjálfvirkt fyrir sig, þ.e.a.s. væru afuröir fyrir hendi var lán- að ákveðiö hlutfall, yfirleitt um 52% af verðmæti afurðanna eóa birgöanna, beint úr Seöla- bankanum. Við þetta lán bættist svo jafnsjálfvirkt lán frá viðskipta- banka. Þannig gátu og geta reyndar enn framleiðendur Lánveitingar gengu nær sjálfvirkt fyrir sig • landbúnaðarafuröa og sjávaraf- urða gengið að því vísu aö fá 70 -75% af birgðaverömæti að láni. Slik sjálfvirkni er á flestan hátt óheppileg. Annar stór galli á afurðalána- kerfi Seðlabankans var, að end- urkeypt lán voru aðeins veitt vegna framleiösla sjávarafuröa og landbúnaðarafurða og til sumra greina iðnaðar. I þessu fólst ástæðulaus mismunur gagnvart öðrum atvinnugrein- um. Hér má líka nefna, að lánakjör á afuröalánum hafa yfirleitt ver- ið langt undir þeim kjörum sem önnur lán bjóöa i bankakerfinu. Þessi mismunur í lánakjörum leiddi til mun meiri ásóknar í þessi vildarlán en eölilegt mátti telja. Slík mismunun i lánakjör- um samrýmist ekki þeirri stefnu, sem nú er uppi um vexti og lánakjör. Rétt er líka að geta þess, aö það er í hæsta máta óeðlilegt og kann aö vera skaðlegt að Seölabankinn, sem er banki viöskiptabankanna og í raun banki allrar þjóöarinnar, hafi með hendi lánveitingar til ein- stakra fyrirtækja. Afurðalánakerfi Seðlabank- ans var lagt niður um miðjan apríl sl. í staö gamla kerfisins kemur útflutningslánakerfi við- skiptabankanna. Veitt eru lán út á útflutningsafuröir og fram- leiðslu - allt að 75% af verð- mæti birgðanna -. Þessi lán viðskiptabankanna eru fjár- mögnuð með innistæðum á ís- lenskum gjaldeyrisreikningum, sem núna nema um 1800 m.kr., meö gjaldeyrisláni úr Seðla- bankanum og meö erlendum bankalánum. Þau afurðalán , sem Seðla- bankinn veitti áður til fram- leiðslu á innanlandsmarkað fluttust jafnhliða yfir til við- skiptabankanna. Á móti kom, að Seðlabankinn lækkaði bindi- skylduna úr 28% af öllum inn- lánum í bankakerfinu i 18%. Við það skapast verulegt svigrúm hjá viöskiptabönkunum til nýrr- ar ráðstöfunar og standa vonir til að bankarnir veröi betur færir hér eftir að svara þörfum alls at- vinnulífsins um lánsfé. 70

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.