Frjáls verslun - 01.04.1989, Side 9
FRETTIR
SÍS BYGGIR YFIR TÖPIN
KÖNNUN HAGVANGS:
30% PJÓÐAR-
INNAR LESA
FRIÁLSA
VERSLUN
í markaðsspá Hag-
vangs fyrir tímabilið ap-
ríl-júní 1989 kemur fram
í 1000 manna úrtaki að
30% þjóðarinnar hafa les-
ið Frjálsa verslun á síð-
ustu 12 mánuðum.
Útbreiðsla Frjálsrar
verslunar eykst nú stöð-
ugt. I könnun Félagsvís-
indastofnunar Háskólans
í október sl. kom fram að
24% þjóðarinnar höfðu
lesið Frjálsa verslun. Hér
er því um fjórðungsaukn-
ingu að ræða.
Samkvæmt könnun
Frjáls verslun 3. tbl. 1989.
Hagvangs eru Mannlíf og
Nýtt líf enn að bæta stöðu
sína. 80% þjóðarinnar
höfðu lesið Mannlíf á síð-
ustu 12 mánuðum saman-
borið við 75% í könnun
Félagsvísindastofnunar
og 72% höfðu lesið Nýtt
líf samanborið við 60%
samkvæmt könnun Fé-
lagsvísindastofnunar í
október 1988. Því er um
verulega aukningu að
ræða.
SPARISJÓÐIR:
SIMABANKA HLEYPT
AF STOKKUNUM
Símabanki sparisjóð-
anna nefnist ný þjónusta
sem sex sparisjóðir
hleypa af stokkunum um
þessar mundir. Hér er um
að ræða þjónustu sem
gerir viðskiptavinum
sparisjóðanna kleift að
hringja hvar og hvenær
sem er og fá upplýsingar
um viðskipti sín auk ým-
issa annarra upplýsinga.
Þeir sparisjóðir sem
standa að símabankanum
eru Sparisjóður Reykja-
víkur og nágrennis,
Sparisjóður vélstjóra,
Sparisjóður Kópavogs,
Sparisjóður Hafnarfjarð-
ar, Sparisjóðurinn í
Keflavík og Sparisjóður
Mýrarsýslu.
Símabankinn vinnur
þannig að menn hringja í
tiltekin símanúmer og
gefa upp kennitölu og að-
gangslykil sem valin eru í
samráði við starfsmann
sparisjóðsins. Að þessu
loknu er hægt að fá ná-
kvæmar upplýsingar um
stöðu reiknings, síðustu
hreyfingar reiknings,
millifæra, panta aukayf-
irlit, senda skilaboð, fá
upplýsingar um inn- og
útlánsvexti, gengi. o.fl.
Notendur símabankans
slá allar upplýsingar inn
á sjálft símtækið eftir
leiðbeiningum sem þeir
heyra jafnóðum.
Mönnum þykir forysta
Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga hafa verið
heldur seinheppin að
hafa einmitt ráðist í að
endurbyggja og innrétta
stórhýsi undir skrifstofur
sínar á sama tíma og tap-
reksturinn reynist vera
skelfilegur án þess að við
nokkuð verði ráðið að því
er virðist.
Af þessu tilefni hefur
glæsihús SÍS á Kirkju-
sandi verið talsvert í um-
ræðunni.
Víst er að andstæðing-
ar Samvinnuhreyfingar-
innar hafa gaman af að
fjalla um þessa ótíma-
bæru fjárfestingu. Einn
þeirra lét svo um mælt á
mannamóti nýlega, þegar
spurt var hvað SIS ætlaði
að gera við þetta stórhýsi
á sama tíma og fyrirtækið
væri að skreppa saman
með milljarða taprekstri,
að sennilega vildu þeir
byggja veglega yfir öll
töpin!