Frjáls verslun - 01.04.1989, Blaðsíða 36
BYGGINGARKOSTNAÐUR
EFT1RMÁL1TÖFLU
Rétt er að taka það fram að lýsingin
á gangi mála hjá A og B er kannski
dálítið ýkt. Ekki er víst að hlutimir
fari svona illa hjá B en þó gætu þeir
líka farið miklu verr. Hugsanlega
hefði A líka getað staðið enn betur að
verki og komið kostnaðinum enn
frekar niður.
Dæmin hér að framan varpa ljósi á
það að ónógur undirbúningur veldur
nær undantekningarlaust hækkun
byggingarkostnaðar og ef þessi um-
fjöllun verður til þess að hvetja vænt-
anlega húsbyggjendur til að undirbúa
sig vel þá er tilganginum náð.
Þessu til áréttingar er rétt að
skoða sögu þriðja mannsins, C, sem
byggir samsvarandi hús og þeir A og
B.
ÚTBOÐ
C ákveður að byggja eins ódýrt og
hagkvæmt og kostur er. Hann býður
því út allt verkið.
Útboðsgögn krefjast hámarks-
vinnu við hina ýmsu þætti undirbún-
ingsins, svo sem við hönnun og áætl-
anagerð. Allar ákvarðanir um tilhög-
un, efiii og útfærslur þurfa að liggja
fyrir, bæði sem teikningar og lýsingar
á einstökum þáttum. Eftirlit og um-
sjón með verkinu verður að vera í
höndum aðila sem hefúr yfirsýn yfir
alla verkþætti og sem fylgist með að
tilskildum hlutum sé rétt skilað.
C verður að vera fjárhagslega vel í
stakk búinn, því að greiðslur fyrir
verkið verður að inna af hendi jafiióð-
um og verktaki skilar nýjum verk-
þætti.
Einu áhyggjumar sem C þarf að
hafa er að standa í skilum með
greiðslur. Hann greiðir aldrei meira
en búið er að framkvæma. Fyrstu
greiðslu - áður en framkvæmdir hóf-
ust - innti hann af hendi gegn trygg-
ingu, sem verktaki lagði fram. Verk-
taki ber alla ábyrgð á verkinu þar til
lokaúttekt og afhending hefur farið
fram. C fær húsið sitt tilbúið eftir um
það bil hálft ár.
Kostnaðarauki hjá C miðað við A
felst í meiri undirbúningi og launum
eftirlitsmanns, sem áætla má að verði
kr. 500.000 samanlagt. Spamaður
miðað við A má þar á móti áætla að sé
10% (jafnvel 20%, en það fer eftir
ástandi markaðarins á hveijum tíma).
HUGLEIÐING UM MISMUN
Lítum nú á endanlegar niðurstöðu-
tölur byggingarkostnaðar þessa
þriggja aðila, A, B og C, og göngum út
frá að C hafi með útboði sínu sparað
10% miðað við A.
A byggir fyrir 13.5 milljónir króna
en B byggir fyrir um 15,6 milljónir
króna. Munurinn er um 2,1 milljón.
Fyrir þá upphæð er hægt að kaupa
tvo góða íjölskyldubíla og munar um
minna. Það er því mikið í húfi að
standa vel að verki. C byggir fyrir
12,2 milljónir króna eða 1,3 milljón
ódýrara en A og 3,4 milljónum ódýr-
ara en B!
EFTIRMÁU
Ég hef ekki farið út í mat á hinum
ýmsu byggingaraðferðum sem vissu-
lega hafa áhrif á byggingarkostnað
bæði til hækkunar og lækkunar.
Þegar litdð er á tímaspamað hvarflar
hugurinn fyrst að einingahúsum sem
hægt er að fá fullbúin á nokkrum vik-
um eða jafiivel nokkrum dögum.
Lengi má halda áfram að velta fyrir
sér hlutunum en slíkt mat er svo flók-
ið og umfangsmikið að það rúmast
ekki í stuttri grein sem þessari.
Hér hafa verið sagðar sögur þriggja
húsbyggjenda, þeirra A, B og C, og
sagt frá mismunandi viðhorfum til
þess hvemig standa skuli að hús-
byggingu. Allir unnu þessir menn eft-
ir bestu sannfæringu. Er einhver
þessara manna dæmigerður íslensk-
ur húsbyggjandi?
í yfir tuttugu ár hef ég starfað við
hönnun húsa og innréttinga og hef
kynnst öllum þessum þremur mann-
gerðum. C er mjög sjaldgæfur. Hinn
dæmigerði íslenski húsbyggjandi,
sem byggir fyrir sjálfan sig, er stadd-
ur á bilinu milli A ogB, sjálfsagt nær B.
36