Frjáls verslun - 01.04.1989, Blaðsíða 106
ATVINNUHUSNÆÐI
Hellnahraun sunnan Straumsvíkur verður eitt öflugasta iðnaðarsvæði
landsins ef að líkum lætur.
þröngar, húsin eru gömul og úr sér
gengin, lofthæð er lítil, svigrúm innan
djnra er knappt og akstursleiðir fyrir
viðskiptavini eru óhentugar. Allt
stuðlar þetta að því að fyrirtæki í t.d.
iðnaði sækja í burtu og auglýsa gamla
húsnæðið til sölu eða leigu.
Þetta ástand skapar m.a. mikið
framboð af atvinnuhúsnæði og þess
vegna sjást stundum fréttir í fjölmiðl-
um um „gífurlegt framboð af atvinnu-
húsnæði“ á höfuðborgarsvæðinu.
Niðurstöður könnunar Atvinnu-
málanefndar Reykjavíkur sl. sumar
bentu til að rúmlega 100.000 fermetr-
ar væru til sölu eða leigu á höfuðborg-
arsvæðinu. Þessum niðurstöðum var
slegið upp í íjölmiðlum en minna hirt
um að glugga í forsendumar fyrir töl-
unum og spá á milli línanna.
í fyrsta lagi mátti af þessum tölum
ráða að allt þetta húsnæði stæði autt,
en sú var ekki raunin. Langmest af
því var og er í notkun en menn aug-
lýsa til að kanna viðbrögð markaðar-
ins og hugsa sér þá til hreyfings í
annað húsnæði ef skilyrði skapast.
I öðm lagi kemur fram í könnun
Atvinnumálanefndar að fasteignasal-
ar, sem haft var samband við, vildu
ekki gefa upp húsnúmer á eignum og
því ekki hægt að útiloka að tvítalning
hafí orðið. Alkunna er að húsnæði er
auglýst hjá mörgum fasteignasölum
þótt úr því hafí dregið eftir að ný
reglugerð um fasteignasölu gekk í
gildi.
í þriðja lagi er mikið af þessu hús-
næði gamalt, illa staðsett og óhentugt
til nútíma reksturs fyrirtækja. í könn-
uninni kemur t.d. fram að af þeim
82.000 fermetrum sem þá vom aug-
lýstir til sölu eða leigu í Reykjavík var
um þriðjungur í miðbæ borgarinnar.
Stór hluti af því sem eftir var reyndist
í hverfum sem ekki þykja lengur ákj-
ósanleg til atvinnurekstrar.
Stefán Ingólfsson verkfræðingur
hefur gert spá um markað fyrir at-
vinnuhúsnæði fram til ársins 1995.
Hann gerir ráð fyrir því að mjög mikið
verði áfram byggt af skrifstofu-,
verslunar- og iðnaðarhúsnæði á höf-
uðborgarsvæðinu þótt um liðlega
10% samdrátt verði að ræða frá því
sem verið hefur. Þetta þýðir að hans
mati þörf fyrir um 270-300.000 rúm-
metra af húsnæði á ári og að um helm-
ingur þess húsnæðis verði fyrir iðn-
aðarstarfsemi.
Ef eitthvað er að marka þessa spá
er tæpast hægt að tala um verulegt
offramboð á Reykjavíkursvæðinu um
þessar mundir. Á það má einnig
minna að við íslendingar erum óvanir
því að nægt framboð sé af húsnæði og
því á sinn hátt nýtt fyrir okkur að sjá
heilu byggingamar auglýstar til ráð-
stöfunar. í Bandaríkjunum er á hinn
bóginn algengt að 5-15% af öllu at-
vinnuhúsnæði standi autt á hverjum
tíma - án þess að talað sé um of-
framboð. Hús eru ótrúlega fljót að
úreldast, þarfír fyrirtækjanna breyt-
ast skyndilega og áður en varir er
komin rífandi atvinnustarfsemi í
Faxafeni 12, 108 Reykjavík, sími: 673830.
LÚXUS SA UNAKLEFAR
frá KNULLWALD
— Fylgihlutir
— Sloppar
— Handklæði
106