Frjáls verslun - 01.04.1989, Side 68
MALNING
Erum flutt í Skeifuna 19
Margar gerðir af HALOGEN lömpum
ra LJÓS & ORKA HF.
IÍIhUi Skeifunni 19, S 91-84488
Knútur G. Hauksson framleiðslustjóri og Kolbeinn Sigurðsson sölustjóri
hjá Slippfélaginu.
Þetta samtarf hefur leitt af sér
margar nýjungar á íslenskum mark-
aði. Við vorum til að mynda fyrstir til
að setja á markað hérlendis innan-
hússmálningu með mismunandi
gljástigi. Við vorum reyndar ekki
fyrstir til að auglýsa upp þá nýjung,
heldur einbeittum okkur að málara-
meisturum. Þeir eru fýrstir til að
reyna nýjungar frá okkur.“
Kolbeinn segir að framleiðslunýj-
ungar séu alltaf reyndar af fagmönn-
um áður en Málningarverksmiðja
Slippfélagsins markaðsetur vöruna.
„Nýjungar eru ýmist tilkomnar vegna
óska markaðarins eða vegna þess að
við fréttum af, eða sjáum á sýningum
erlendis, vöru sem að okkar mati býr
yfir eiginleikum sem gætu nýst vel
hér á landi.
Ef okkur lýst það vel á vöruna eða
hugmynd sem kemur frá málurum, að
við förum út í framleiðslu, fara fyrstu
tilraunalaganimar til valdra viðskipta-
vina. Þeir prófa málninguna og við
tökum umsagnir þeirra til athugunar.
Þær geta leitt til þess að varan verði
endurbætt áður en hún er sett á
markaðinn, notendum málningarinn-
ar til góða.“
Það vakti athygli blaðamanns að á
meðan spjallað var við Kolbein og
Knút kom fyrirspurn til Knúts um það
hvort unnt væri að framleiða 120 lítra
að ákveðinni málningu þann daginn.
Knútur hélt nú að það væri hægt og
truflunin kallaði á spumingu um það
hvort algengt væri að þeir væm
beðnir um sérstakar laganir á máln-
ingu með þetta stuttum fyrirvara.
Knútur sagði svo vera. „í skipa-
málningunni eru menn mjög fast-
heldnir á liti. Sumir skipstjórar segj-
ast til að mynda ekkert fiska nema
skipið sé í rétta litnum og oft er um að
ræða sérstakan lit sem ekkert annað
skip er málað í. Síðan þarf að endur-
nýja málninguna á skipið og þá er
málningin pöntuð, oft eftir að skipið
er komið í slipp. Reyndar er það oft
skiljanlegt að menn panti með litlum
fyrirvara, því skip getur bilað og þá er
það oft málað fyrst það er á annað
borð komið í slipp.
Þetta sama á við um húsamálningu,
einkanlega utanhússmálningu. Við
þurfum oft að bjarga mönnum um sér-
staka liti með litlum fyrirvara og til að
geta sinnt þessum sérverkefnum er-
um við með mjög sveigjanlega fram-
leiðslulínu í verksmiðjunni."
Þeir Knútur og Kolbeinn voru sam-
mála um að það væri ekki erfitt að
leggja mikla áherslu bæði á skipa- og
húsamálningu. „Framleiðsluleyfin
tryggja óneitanlega hagkvæmni í
rekstri og um leið góða vöru. Fyrir
vikið getum við einnig boðið upp á
ódýra vöru. Það sést best hvað varð-
ar skipamálninguna. Þar erum við
fyllilega samkeppnisfærir við erlenda
aðila. Við afhendum oft skipamáln-
ingu í nágrannalöndunum til dæmis
þegar skip selja afla sinn erlendis og
fara í slipp í leiðinni. Þá geta þau pant-
að málningu hjá okkur og fengið hana
afhenta þar. Þetta mundu útgerðar-
félög skipanna ekki gera nema við
værum samkeppnisfærir við erlenda
aðila.“
68