Frjáls verslun - 01.04.1989, Side 76
ÞJONUSTA
VEITUM
HLUTLAUSAR
UPPLÝSINGAR
- GENGIÐ Á MILLI BÁSA
í BYGGINGARÞJÓNUSTUNNI
OG RÆTT VIÐ
ÓLAF JENSSON FRAMKVÆMDASTJÓRA
Ólafur Jensson.
Alkunna er að íslendingar eru
manna duglegastir við að vinna
við hús sín sjálfir og gildir þá
einu hvort um er að ræða
nýbyggingar eða viðhald. Sér-
fræðingamir em margir og það
þykir kostur við landann að
kunna sitthvað fyrir sér í hand-
verkinu. Af þessum sökum m.a.
hefur skapast þörf fyrir ráð-
gjafaþjónustu varðandi notkun
efna og vinnuaðferðir og fjöl-
margir aðilar hafa reynt að
sinna því verkefni. Einn þeirra
stendur þó upp úr og hefur verið
starfandi í rétta þrjá áratugi um
þessar mundir.
Byggingarþjónustan að Hallveigar-
stíg 1 í Reykjavík var stofnuð árið
1978 upp úr Byggingarþjónustu Arki-
tektafélags íslands sem þá hafði starf-
að í tæpa tvo áratugi. Aðilar að fyrir-
tækinu eru Arkitektafélag íslands,
Félag íslenskra iðnrekenda, Hús-
næðisstofnun ríkisins, Iðntækni-
stofnun íslands, Landssamband iðn-
aðarmanna, Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins, Reykjavíkur-
borg og Akureyrarbær.
Við gengum á fund framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins, Ólafs Jenssonar,
og báðum hann fyrst um að lýsa fyrir
TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSSON MYNDIR: GUN
okkur hlutverki og tilgangi Bygging-
arþjónustunnar.
„Eins og segir í upplýsingabæklingi
frá okkur er Byggingarþjónustan al-
hliða upplýsingaþjónusta fyrir al-
menning og fagfólk um allt sem snert-
ir húsnæðis- og byggingarmál. Hér
höfum við fjölbreytt úrval byggingar-
efna og búnaðar og veitum hlutlausar
upplýsingar um hvaðeina sem fólk
kann að spyija um varðandi þau mál.
Þá liggja hér frammi eða til kaups
bæklingar og úttektir frá Rannsókn-
arstofnun byggingariðnaðarins, staðl-
ar frá Iðntæknistofoun, vöruskrár frá
söluaðilum byggingarefna o.fl. Þar
fyrir utan erum við með öflugan tölvu-
banka þar sem er ítarleg skrá um
byggingarefni og bent á trausta og
ábyggilega iðnaðarmenn og verktaka
í byggingariðnaði.
Það hefur alltaf verið aðall Bygg-
ingarþjónustunnar að veita hlutlausar
upplýsingar um byggingarmál enda
koma til okkar tugþúsundir manna á
ári hveiju til að kynna sér það nýjasta í
þessari grein.“
Ólafur sagði okkur frá því að gjarn-
an kæmi til Byggingarþjónustunnar
fólk sem væri að hefja byggingu. Það
fengi upplýsingar um helstu lóðir sem
í boði væru eða þær íbúðir sem væru
RGUNNARSSON
á markaðnum. Hjá þjónustunni væri
veitt ráðgjöf varðandi teikningar,
samstarf við arkitekta og byggingar-
aðila, val á efnum, innréttingar og
hvaðeina allt fram til loka byggingar-
innar. Síðast en ekki síst væri reynt
að gera fólki grein fyrir peningahlið-
inni, reikna út greiðslubyrði lána
o.s.frv.
„Vandi húsbyggjenda liggur oft í
því hvaða efni skuli nota hverju sinni
þegar framkvæmdir standa yfir. Úr-
val byggingarefna í verslunum er gíf-
urlegt og það er ekki nema á færi
sérfræðinga að velja skynsamlega
það sem við á í hverju tilviki. Því mið-
ur kemur fólk oft til okkar eftir á og
rekur raunir sínar vegna þess að það
hefur fengið röng efni eða það hefur
ekki kunnað að nota þau.
Við getum tekið sem dæmi fúa-
vamarefnin. Þau eru í tugavís í versl-
unum. Þar höfum við einkum bent á
þrennt: í fyrsta lagi að eina varanlega
vömin er gegnfúavöm í upphafi. í
öðru lagi að fylgja þurfi nákvæmlega
leiðbeiningum framleiðenda þegar
fúavarnarefnið er borið á. Og í þriðja
lagi að nota eigi samskonar efni þegar
þarf að endurnýja vömina síðar eða
a.m.k. efni sem örugglega gengur í
samband við það sem fyrir er. Ef fólk
76