Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1989, Side 21

Frjáls verslun - 01.04.1989, Side 21
 | F0RSIÐUGREIN um byggingum. Að auki er ljóst að bókfært verð rekstrarfjármuna er nokkru eða jafnvel mun lægra en raunvirði þeirra og er því síst van- áætlað að heildareignir launþega- hreyfingarinnar séu á bilinu 6-8 millj- arðar króna. Skuldir verkalýðs- og stéttarfélaga eru óverulegar og í langflestum tilfell- um er einungis um að ræða ógreidda reikninga vegna skrifstofurekstrar ellegar þá bókhaldslegar skuldir í þeim skilningi að sjóðir innan sama félags skulda hver öðrum fé þegar uppgjör fer fram. Ofangreindar eignir geta því talist eigið fé TEKJUR GJÖLD OG REKSTUR Tekjur félaganna eru einkum af innheimtum iðgjöldum í formi hlutfalls af tekjum félagsmanna. Félögin ákveða sjálf hlutfallið og til hvaða launa iðgjöldin ná. Algengt hlutfall er 1-2% og færist í vöxt að það nái yfir öll laun, en ekki einungis dagvinnukaup. Iðgjöldin renna yfirleitt í þrjá sjóði innanfélagsins: félagssjóð, orlofssjóð og styrktar- eða sjúkrasjóð. Þó er sjaldnast um að ræða sjúkra- eða styrktarsjóði hjá félögum opinberra starfsmanna vegna þeirra kjara sem þeir njóta við veik- indaforföll og önnur áföll. Stærstur hluti tekna félaganna er að jafnaði af styrkt- ar- og sjúkrasjóðsið- gjöldum, þ.e. um 35% heildartekna, um 25% koma af fé- lagssjóðsiðgjöldum og um 15% af orlofs- sjóðsiðgjöldum. Að auki eru um 15-20% tekna þeirra fjár- munatekjur, þ.e. vextir og verðbætur af bankainnistæðum og skuldabréfum, arður af hlutafé o.fl. Aðrar tekjur eru t.d. ur. Að jafnaði eru tekjur verkalýðs- og stéttarfélaga um 20- 25 þúsund krónur á félagsmann á ári hverju. Þessi tala er í sumum tilfellum margfalt hærri, en einnig lægri, eink- um hjá félögum opinberra starfs- manna. Ef miðað er við ofangreinda upp- hæð verða heildar- tekjur launþegafé- laga á þessu ári um og yfir 2 milljarða króna. Útgjöld félaganna eru einkum laun og launatengd gjöld, rekstrarkostnaður skrifstofu, kostnað- ur í sambandi við fundahöld og útgáf- ustarfsemi og gjöld tengd rekstri orlofs- heimila. Við þetta bætast styrkveit- ingar úr sjúkrasjóð- um, sem eru mjög mismunandi eftir fé- lögum, svo og sér- stök útgjöld á borð við verkfaUsbætur. Undantekningar- laust er hagnaður af rekstri verkalýðsfé- laga, allt frá 10% upp í 60% og algengast er að hann sé á bilinu 20-40%. Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar er launþegaforingi af gamla húsaieigutekj- skólanum. Hann er ekki hrifinn af forvitni fjölmiðla um fjárhag verkalýðshreyfingarinnar og vísaði blaðamanni Frjálsrar verslunar á dyr. FIMM EFNUÐUSTU VERKALÝÐSFÉLÖGIN Eftir því sem Frjáls verslun kemst næst eru eftirfarandi fimm launþegafélög fjársterkust: Félag Bókfærðar eignir (núvirði) 1. Verslunarmannafélag Reykjavíkur.................. 406.053.000 2. Verkamannafélagið Dagsbrún..... 244.310.000 3. Iðja, félag verksmiðju- fólks ....................... 149.426.000 4. Félag bókagerðarmanna ... 101.149.000 5. Starfsmannafélagið Sókn ... 100.115.000 Samtals................... 1.001.053.000 LAUNÞEGAHREYFINGIN Þegar rætt er um launafélög hér að framan er átt við félög innan ASÍ, BSRB og BHMR og auk þess nokkur stór félög sem standa utan sambanda, s.s. Kennarasamband íslands og Samband íslenskra bankamanna. Samtals eru í þessum félögum um níutíu þúsund launfélagar. Eins og áður greinir eru útreikn- ingar Fijálsrar verslunar byggðir á ársreikningum um tuttugu verkalýðs- og stéttarfélaga. Samtals hafa þessi félög rúmlega fimmtíu þúsund manns innan sinna vébanda eða ríflega helm- ing allra í hreyfingunni. Upplýsingum um fjárhagsstöðu verkalýðshreyfingarinnar er hvergi haldið saman á skipulegan hátt. Hvorki ASÍ, BSRB, landssambönd né svæðasambönd safna saman árs- reikningum félaga eða vinna úr þeim. Þeirra er því einungis að leita hjá ein- stökum félögum. Óhætt er að segja að launþegafor- ingjar hafi brugðist misjafnlega við beiðnum Frjálsrar verslunar varðandi 21
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.