Frjáls verslun - 01.04.1989, Blaðsíða 51
GOLF
MIKIÐ ÚRVALAF GÓLFEFNUM:
DEKKRILITIR ERU NÚ AÐ
KOMAST AFTUR í TÍSKU
Teppaland — Dúkaland.
Úrval gólfefna hér á landi er
með eindæmum gott og hefur
það aukist jafnt og þétt undan-
farin ár. Flestar sérverslanir
með gólfefni selja jafnt gólf-
teppi, sem og parket, dúka og
gólf- og veggflísar. Hér á eftir
verður gerð lausleg úttekt á al-
gengustu gólfefnunum en í því
sambandi var haft samband við
stærstu sérverslanir á Stór-
Reykjavíkursvæðinu.
Það sem mest kom á óvart var hið
mikla úrval sem til er, bæði hvað
varðar verð og gæði. Menn voru al-
mennt sammála um að gólfefnin væru
að dökkna aftur, eikin væri auðvitað
vinsælust en hina síðustu mánuði
mætti merkja að fólk vildi dekkra
parket. Sömu sögu er að segja af gólf-
teppum og er meira keypt af lituðum
teppum svo og mynstruðum en pastel
TEXTI: HALLDÓRA SIGURDÓRSDÓHIR MYNDIR:
litirnir eru vinsælastir. Dúkar eru
þessa stundina í tísku og hefur það
aukist mjög að þeir séu keyptir, sem
dúkar, þ.e. ekki endilega með parket-
eða korkmynstri.
TEPPALAND - DÚKALAND
Verslunin Teppaland - Dúkaland,
Grensásvegi 13, selur gólfteppi,
dúka, parket og fk'sar. Að sögn Bjama
Gíslasonar, verslunarstjóra, eru þeir
með geypilegt úrval gólfefna og kem-
ur mismunurinn fram í verði og gæð-
um.
Teppi eru flutt inn frá Belgíu, Dan-
mörku, Svíþjóð, Þýskalandi, USA,
Kanada, Skotlandi og Englandi, svo
eitthvað sé nefnt. Hægt er að fá ódýr
filt-teppi frá 398 kr. (fermetrinn) en
dýrustu teppin, skosku „highland-
tweet“ teppin, kosta 4123 kr. hver
fermetri. Þau eru úr 80% ull og 20%
: KRISTJÁN EINARSSON
næloni. Til eru teppi úr hreinni ull,
ullarblöndu og teppi úr gerviefnum í
öllum hugsanlegum litum en einnig er
hægt að fá sérpantað.
Dúkar koma frá hinum ýmsu lönd-
um en aðallega frá Þýskalandi, Frakk-
landi, Hollandi og Svíþjóð. Vinsæl-
ustu dúkarnir eru BN-international
dúkarnir frá Hollandi og kostar hver
fermetri 976 kr. Ódýrustu dúkamir í
versluninni kosta 585 kr. hver fer-
metri en þeir dýmstu kosta 1338 kr.
hver fermetri. Að sögn Bjama hefur
aukist mjög að keyptir séu líflegir og
litfagrir dúkar en hægt er að fá alla
regnbogans liti í dúkum.
Gólf- og veggflísar koma aðallega
frá Spáni og Þýskalandi. Til eru all-
nokkrar tegundir af vegg- og gólfflís-
um í mismunandi stærðum og gerð-
um. Verð á flísum er frá 1589 kr. hver
fermetri upp í 1900 kr.
Flestallar parkettegundirnar, sem
seldar eru í Teppalandi - Dúkalandi,
eru frá Þýskalandi og kallast Haro.
Mest er tekið af eik en auk þess em
beyki, askur og hlynur vinsælar teg-
undir. Ódýrasta parketið kostar 2800
kr. hver fermetri en í því tilviki er um
kvistað parket að ræða. Dýrasta
parketið kostar hins vegar 3200 kr.
hver fermetri og er það fullkomlega
ókvistað.
TEPPABÚÐIN SUÐURLANDSBRAUT 26
Teppabúðin á Suðurlandsbraut er,
að sögn Jóns Karlssonar fram-
kvæmdastjóra, gólfefnamarkaður
sem selur ekki bara teppi heldur einn-
ig dúka, parket og fk'sar. Vinsælustu
gólfdúkarnir eru Armstrong-dúkarnir
bandarísku en þá þarf hvorki að líma á
51