Frjáls verslun - 01.06.1993, Blaðsíða 11
FRETTIR
Langsterkasti lesendahópur
Frjálsrar verslunar eru fólk á
aldrinum 35 til 50 ára úr röð-
um stjórnenda, atvinnurek-
enda og sérfræðinga. Könn-
unin gefur vísbendingu um
að 33 þúsund íslendinga lesi
blaðið.
STJÓRNENDUR OG SÉRFRÆÐINGAR ERU
HELSTU LESENDUR FRJÁLSRAR VERSLUNAR
Nidurstöður úr nýrri
fjölmiðlakönnun, sem
gerð var af Félagsvís-
indastofnun Háskólans,
staðfestir enn einu sinni
að stjórnendur, atvinnu-
rekendur og sérfræð-
ingar í atvinnulífinu eru
helstu lesendur Frjálsrar
verslunar.
Fjölmiðlakönnunin
náði til sjónvarps, út-
varps, dagblaða, viku-
blaða og tímarita. Könn-
unin var unnin vikuna 16.
til 22. apríl fyrir fjöl-
miðla, Samtök auglýs-
enda og Samband ís-
lenskra auglýsingastofa.
Úrtakið var 1.500 manns
á landinu öllu. Aldurs-
hópurinn var 12 til 80
ára. Þetta var skrifleg
könnun. Svörun alls var
64%.
Meginniðurstaðan
fyrir Frjálsa verslun var
sú að 16% úrtaksins lesa
blaðið. Það er vísbending
um að 33 þúsund íslend-
inga lesi blaðið. Lang-
sterkasti lesendahópur-
inn er fólk á aldrinum 35
til 50 ára með tekjur yfir
150 þúsund krónur á
mánuði. Blaðið er mikið
lesið á vinnustöðum en
þangað berst það að stór-
um hluta í áskrift þar sem
margir einstaklingar sjá
hvert eintak.
Könnunin sýnir enn-
fremur að tveir af hverj-
um þremur lesenda eru
karlar.
HAGNAÐUR
HANDSALS 9,3
MILUÓNIR
Rekstur verðbréfafyrirtækis-
ins Handsals hf. gekk vel á síð-
asta ári. Hagnaður fyrir skatta
nam um 9,3 milljónum króna en
nettó hagnaður var um 5,9 mill-
jónir.
Samkvæmt fréttatilkynningu
Handsals námu rekstrartekjur
félagsins um 59,8 milljónum og
rekstrargjöld 47,2 milljónum.
Umfang Handsals á verð-
bréfamarkaðnum jókst stórlega
á síðasta ári rniðað við árið
áður. Heildarvelta í verðbréf-
um, umfang viðskipta með
verðbréf, var um 15 milljarðar
króna samanborið við 9,3 millj-
arða á árinu 1991.
Eigið fé Handsals í árslok
1992 var 96 milljónir og hafði
hækkað úr 73,9 milljónum frá
árinu áður. Þetta var annað
starfsár félagsins.
Framkvæmdastjórar Hands-
als eru Edda Helgason og Pálmi
Sigmarsson. Stjórn félagsins
var endurkjörin. Hana skipa:
Agúst Valfells formaður, Gísli
Marteinsson, Ágúst Karlsson,
Ármann Örn Ármannsson og
Edda Helgason.
Verð frá kr. 15.500,-
Fjarstýrðar samlæsingar
Verðfrá 12.750,-
DAGLJÓSABÚNAÐUR
Mjög vandaður dagljósabúnaður
fyrir allar gerðir bíla.
Verðfrákr. 4.250,-
BÍLTÆKI
Mikið úrval bíltækja og hátalara.
• Bílsímaísetningar
• Rafeíndaviögeröir
• Bílarafmagn
Ámiúla 17a, sími 670963
11