Frjáls verslun - 01.06.1993, Blaðsíða 48
TOLVUR
SNJÖLL LAUSN Á
SÍGILDU VANDAMÁLI
Boðeind nefnist fyrirtæki á Sel-
tjarnarnesi sem m.a. er þekkt fyrir
sölu á More PC. En Boðeind hefur
margt annað að bjóða, ýmsan sér-
hæfðan vél- og hugbúnað sem mörg
fyrirtæki og stofnanir nota svo sem
sjálfvirk öryggisafritunarkerfi, vír-
usvarnir, stýri- og eftirlitskerfi fyrir
nærnet (LAN), tölvufax og ýmis
hjálparforrit.
Um nokkurra ára skeið hefur Boð-
eind verið umboðsaðili bandaríska
fyrirtæksins Walker Richer & Quinn í
Seattle en WR&Q er þekkt fyrir þró-
un Reflection skjáherma, hugbúnaðar
sem gerir fyrirtækjum kleift að nota
PC/PS-tölvur og Macintosh sem út-
stöðvar stærri tölvukerfa á borð við
HP 3000, Digital VAX/VMS, Unix-
miðtölvur, IBM AS 400 og IBM meg-
intölvur.
„Skjáhermir" segir ef til vill ekki
mikið þeim sem ekki starfa á tölvu-
sviði. En þetta fyrirbæri, sem hefur
verið þekkt síðan fyrir 1980, getur
skipt öllu máli fyrir stjórnendur fyrir-
tækja sem standa frammi fyrir viða-
mikilli ákvörðun um endurnýjun
tölvukerfís, t.d. í fyrirtæki þar sem
nettengdar PC-tölvur, sem upphaf-
lega reyndust hagkvæmasta lausnin,
anna ekki álaginu lengur.
Með skjáhermum er unnt
að nýta alla þá kosti sem
stærri tölvur (mini) hafa
umfram PC/PS og Macin-
tosh en um leið alla kosti
þeirra síðarnefndu, m.a.
grafíska eiginleika, Win-
dows skjástýrikerfið og all-
an þann fjölbreytta hugbún-
að sem PC-markaðurinn
hefur upp á að bjóða. Ref-
lection tengir PC/PS-tölvur
við stórtölvur (HP3000,
DEC/VAX, Unix, IBM) um
netkerfi (Novell, 3Com,
AppleTalk). Skjáhermunin
er fáanleg fyrir MS-DOS,
Macintosh (einnig System 7) og Win-
dows.
Reflection skjáhermar gera m.a.
kleift að láta nettengdar PC/PS- tölv-
ur sækja, vinna og vista gögn á stór-
tölvu. Hægt er að skipta á milli við-
móta, t.d. PC-netviðmóts og út-
stöðvar-viðmóts án þess að
endurræsa þurfi PC-tölvuna. Eini
vélbúnaðurinn sem þarf í PC er
Ethernet-spjald.
Jafnvel þótt skipt sé yfir í margfalt
öflugri miðlæga tölvu gerir Reflection
kleift að láta þann starfsmann, sem
t.d. er vanur Macintosh og vinnur öll
sín verk á hana, t.d. grafísk verkefni,
nota gagnasafn stórtölvunnar. Sama
gildir um þá starfsmenn sem vanir eru
að nota PC-tölvu, t.d. við ritvinnslu,
umbrot o.s.frv.
Reflection er í raun miklu meira en
skjáhermir (emulator) þetta er heild-
arlausn á því að nýta saman afl stór-
tölvunnar og lipurð PC/PS-tölvanna
þannig að úr verði kerfi sem nýtir allt
keypt tölvuafl. Þannig býður Refl-
ection upp á eigið skipanamál sem er
ekki ólíkt runuvinnslu í MS-DOS.
Skipanamálið gengur jöfnum höndum
á milli DOS, Windows og Macintosh
án nokkurra breytinga eða stillingar.
Þá býður Reflection einnig upp á
API forritaskil en með þeim getur for-
ritari skilgreint sérstök notendaskil
gagnvart stórtölvunni í þeim kerfum
sem hann setur upp. Með API-skilum
er hægt að búa til forrit sem tengist
stórtölvu með sk. PPL-tengi
(Process-to-Process Link). Þetta er
þýðingarmikið atriði, nefnist biðlara/
miðlara högun, og gerir kleift að
senda gögn beint til vinnslu í PC/PS-
tölva og nota þær til að létta álagi af
stórtölvunni.
API-skilin í Reflection bjóða einnig
upp á RPC forritaköll (Remote
Procedure Calls). Það þýðir að forrit
er ræst og keyrt á stórtölvu (miðlar-
anum) þótt það sé notað af PC/PS
tölvu (biðlaranum) sem þannig setur
fram forsendur og fær niðurstöðu,
t.d. myndrænt. Til að skýra þetta
betur þá gerir Reflection m.a. kleift
að nota viðamikil kerfi í neti án þess
að þau þurfi að senda út á netið.
Gögn eru betur geymd á stórtölv-
um og þar má búa svo um hnútana að
engar tölvuveirur geti gert óskunda
og öryggisafritun sé sjálfvirk. Byggja
má upp þrepaskiptan aðgang að ýms-
um upplýsingum, t.d. vegna trúnað-
armála auk þess sem geymslurýmd
er miklu meiri. Á stórtölvum getur
afgreiðsluhraði í vinnslu verið marg-
faldur á við PC; hægt að vinna mörg
verkefni samtímis, hægt að afgreiða
margar útstöðvar samtímis, beinlínu-
vinnsla er raunverulego.s.frv. Þegar
þessir kostir sameinast kostum PC/
PS-tölva verður til mjög öflug lausn á
tölvuþörfum fyrirtækis.
48