Frjáls verslun - 01.06.1993, Blaðsíða 52
ERLENT
Vic Pelson er yfirmaður langlínudeilar AT&T sem færir
fyrirtækinu nú um 61% allra tekna þess. AT&T afgreiðir
140 milljónir Ianglínusímtala á hverjum degi.
Þótt í gegnum fyrirtæk-
ið fari 140 milljónir sí-
mhringinga á sólarhring
nota stjórnendur þess
varla orðið „síma“. Þess í
stað tala þeir fyrst og
fremst um framtíðina og
alla þá miklu fjarskiptanýj-
ungar sem eru í sjónmáli
fyrir notendur og fyrir-
tækið mun láta til sín taka.
Menn sjá fyrir sér að
fjarskiptanet AT&T muni í
framtíðinni ekki aðeins
sinna samskiptum á milli
fólks heldur ekki síður
þjónusta fólk á sviði vinnu,
innkaupa, menntunar og
afþreyingar- og skemmt-
iefnis. Robert Morris,
verðbréfasérfræðingur
hjá Goldman Sachs, segir
AT&T hafa sérlega góða
stöðu til að verða miðpunktur fjarsk-
ipta í samskiptum fólks, í tölvuheim-
inum, í upplýsinga- og afþreyingar-
geiranum og í allri útgáfustarfsemi.
„Fyrirtækið hefur tækifæri til að
skapa tilveru sem önnur fyrirtæki á
sviði íjarskipta geta ekki leikið eftir.“
ÞANNIG SKILGREINIR
ALLEN MARKMIÐ AT&T
Robert Allen skilgreinir hins vegar
markmið AT&T einfaldlega svona:
„Það er að sjá til þess að fólk hafi
auðveldan aðgang hvert að öðru og að
þeim upplýsingum sem
það vantar, — hvenær
sem er og hvar sem er.“
Helstu breytingar Allen
hjá AT&T eru:
1. NÝTT SKIPULAG
Hann hefur innleitt nýtt
stjórnskipulag sem hvetur
til aukinnar samvinnu ann-
ars mjög sjálfstæðra
deilda. Hann hefur mynd-
að sterkan hóp fólks úr öll-
um deildum sem leitar ein-
göngu að nýjum tækifær-
um fyrir fyrirtækið. Annar
hópur, en í honum eru
framkvæmdastjórar fjög-
urra helstu greina fyrir-
tækisins, kemur saman
sem sterk liðsheild og rek-
ur fyrirtækið frá degi til
dags.
2. VIRÐING FYRIR ALMENNINGI
Hann hefur látið fyrirtækið koma
sér upp sterku gildismati um sam-
skipti við almenning. A meðal nokk-
urra gilda má nefna að fyrirtækið á að
bera virðingu fyrir einstaklingum og
ROBERT ALLEN, FORSTJÓRI AT&T:
VIÐSKIPTAVINIRNIR ERU
EFSTIR í SKIPURIHNU
Robert Allen, forstjóri AT&T,
hefur í starfi sínu lagt mikla áherslu á
að hrista upp í stjómun fyrirtækisins
og gera skipulagið sveigjanlegra og
segir að þarfir viðskiptavinanna ráði
mestu um það hvernig ákvarðanir
séu teknar. I Fortune eru lagðar
fyrir hann nokkrar spurningar um
breytingar hans.
— Hvers vegna hefur þú lagt svo
mikla áherslu á að breyta „kúltúr“
AT&T?
„Við verðum einfaldlega að vera
sneggri og opnari fyrir breytingum.
Astæðan er sú að í rafeindaiðnaði,
fjarskiptum, tölvuheiminum og fjöl-
miðlun eru miklar breytingar að eiga
sér stað hjá viðskiptavinunum, þeir
leita meira saman. Hæfileikar eru
ekki samankomnir á einum stað, þeir
eru dreifðir. Þess vegna er okkur
nauðsynlegt að stofna félög með öðr-
um eða fjárfesta í öðrum fyrirtækjum.
VIÐSKPTAVINIRNIR RÁÐA
Það er erfítt að breyta „kúltúr"
fyrirtækis sem var mjög stíft og með
stjórnskipulagið: Að ofan og niður.
Við reynum að skapa andrúmsloft þar
sem skipuritinu er snúið við og við-
skiptavinimir settir efstir. Þeir
starfsmenn, sem eru í mestri snert-
ingu við viðskiptavinina og þekkja
þarfir þeirra, ættu auðvitað að vera
þeir sem taka lykilákvarðanirnar."
— Þýðir þetta ekki að stjómendur
verða að vinna á mismunandi hátt?
„Ég bið stjórnendahópinn að bera
tvo hatta. Ég segi: Komið á stjórnar-
fundi og kynnið starfsemi ykkar
sviðs. En ég bæti við að það geti
komið þeir tímar að ég biðji þá að bera
minn hatt til jafns við hluthafanna og
hjálpa mér að taka ákvarðanir.
Ákvarðanataka er orðin flóknari þar
sem við erum með starfsemi um allan
heim. Við viljum að starfsmenn í landi
X ákveði hvað eigi við á hverju mark-
aðssvæði en ákvarðanirnar séu eftir
sem áður teknar með heildarhags-
muni fyrirtækisins f huga.“
FRAMLEIÐSLA OG ÞJÓNUSTA
— Hvers vegna er AT&T svo
ákveðið í að vera bæði þjónustu- og
framleiðslufyrirtæki?
„Það er hagkvæmt fyrir okkur að
ýmsu leyti. Við getum sýnt viðskipta-
52