Frjáls verslun - 01.06.1993, Blaðsíða 36
NÆRMYND
NÆRMYND AF SIGURÐIEGILSSYNI:
FARSÆLL FJARFESTIR MEÐ
ÁHUGA Á BRIDGE OG BÍLUM
Þegar nafn Sigurðar Egilsson-
ar ber á góma í fjármálaheimin-
um kemur ekki nema einn Sig-
urður Egilsson til greina. Hann
er 71 árs farsæll fjárfestir, einn
helsti hluthafinn í Eimskip og
Marel og sá stærsti í Hampiðj-
unni. Hann hefur mikinn áhuga
á bridge og bílum. Bílaáhugi
hans er eiginlega genískur, hon-
um í blóð borinn, faðir hans var
Egill Vilhjálmsson sem rak
samnefnt bílafyrirtæki við
Hlemm til margra ára. Sigurður
hefur unnið mikið starf fyrir AA-
samtökin í mörg ár. Hann er
hógvær maður og fremur lítt
þekktur á meðal yngra fólks í
viðskiptalífinu. Hann er hér í
nærmynd Frjálsrar verslunar.
ÞYKIR UÚFUR EN SVOLÍTIÐ
SEINTEKINN FYRIR ÓKUNNUGA
Þeir, sem þekkja vel til Sigurðar,
lýsa honum allir á einn veg: Hann sé
hægur og ljúfur, ákaflega geðþekkur
en geti verið hlédrægur og svolítið
seintekinn fyrir ókunnuga. Vinir hans
minnast líka allir á að fyrra bragði að
hann sé einstaklega vel giftur. Eigin-
kona hans er Kristín Henriksdóttir.
Börn þeirra erum fimm, þrjár dætur
og tveir synir en annar sonanna er
látinn.
í einum nánasta vinahópi Sigurðar
eru þekktir menn úr viðskiptalífinu
sem hann drekkur kaffi með á hverj-
um morgni. Þeir koma saman í um
klukkustund á Aski við Suðurlands-
braut 4 klukkan hálftíu á virkum dög-
um. Aður komu þeir saman á Aski við
Laugaveg 28. Á laugardagsmorgnum
hittist hópurinn í Laugaási, við Laug-
arásveg 1. Raunar bætast þá nokkrir
við hópinn, fleiri láta sjá sig.
FASTAGESTIRNIR Á ASKI
Fastagestirnir með Sigurði á Aski á
morgnana eru þeir Þráinn Valdimars-
son, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins, Gissur Símon-
arson, í Gluggasmiðjunni, Indriði
Pálsson, stjórnarformaður Eimskips,
Óttarr Möller, fyrrum forstjóri Eim-
skips, Frank Michelsen úrsmiður,
Jón Gunnarsson heildsali, Guðmund-
ur Arason, innflytjandi stáls, Hannes
Pálsson, fyrrum aðstoðarbankastjóri
Búnaðarbankans, og Þórir Lárusson
rafverktaki.
ÍKAFFIMEÐ FORSETA ASÍ
Þegar hópurinn kemur saman á
laugardagsmorgnum bætast oftast í
hann þeir Benedikt Davíðsson, for-
seti ASI, Þorvaldur Guðmundsson, í
Síld og fisk, Jón Aðalsteinn Jónsson
íslenskufræðingur og Halldór Jóns-
„Fyrir ókunnuga gæti ég trúað því
að Sigurður væri svolítið seintek-
inn. En í vina- og kunningjahópi er
ævinlega stutt í brosið hjá honum.
son, framkvæmdastjóri Steypu-
stöðvarinnar.
Af öðrum mönnum, sem nefndir
eru sérstaklega til sögunnar í vina-
hópi Sigurðar, má nefna þá Vilhjálm
Heiðdal, fyrrum deildarstjóra hjá
Pósti og síma, og Gunnar Helgason
rafvirkja, sem verið hefur meðspilari
hans í bridge, makker, í um átta ár.
Þá má geta Gunnars J. Friðrikssonar
iðnrekenda sem hefur rekið plast-
verksmiðjuna Sigurplast ásamt Sig-
urði í um þrjátíu ár. Þess má geta að
Gunnar átti og rak sápugerðina Frigg
í Garðabæ um áratugaskeið.
ELSTUR ÞRIGGJA BARNA
EGILS VILHJÁLMSSONAR
Raunar er vinahópur Sigurðar ákaf-
lega stór. Það kom best í ljós þegar
hann hélt skemmtilegt sjötugsafmæli
á Hótel Sögu fyrir tæpum tveimur
árum. En Sigurður er fæddur 30.
ágúst árið 1921. Hann er elstur
þriggja barna Egils Vilhjálmssonar og
Helgu Sigurðardóttur. Systkini hans
tvö eru, þau Ingunn og Egill. Sigurður
ólst upp við Bjarkargötuna. Hann
nam við Verslunarskólann og Iðn-
skólann, bílayfirbyggingar. Snemma
stofnaði hann vörubílafyrirtæki og
gerði út vörubíla. Hann vann mikið
við uppbyggingu flugvallarins við
Kaldaðarnes þegar hann var lagður á
stríðsárunum og hafði gott upp úr því.
Hann vann um langt skeið í bílafyrir-
tæki föður síns en síðustu tuttugu ár-
in hefur borið mest á honum sem fjár-
festi á fjármálamarkaðnum. Þar hefur
hann látið peningana vinna fyrir sig
þótt kúrfan á hlutabréfamarkaðnum
sé raunar í niðursveiflu um þessar
mundir vegna samdrátts í atvinnulíf-
inu.
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON
36