Frjáls verslun - 01.06.1993, Blaðsíða 56
FOLK
ÓLAFUR ÁRSÆLSSON HJÁ VÉLADEILD MARINÓS PÉTURSSONAR-MERKÚRS HF:
GÓÐ OG VÖNDUÐ ÞJÓNUSTA
FREMUR EN ÚTÞENSLA
Ólafur vann við viðgerðir og þjónustu á Caterpillar vélum á annan áratug og stjórnaði
verkstæðum Bílaborgar áður en hann gerðist framkvæmdastjóri hjá Merkúr.
„Hjá Merkúr er sala
og markaðssetning á
bátavélum, jarðvegs-
tækjum og vélsleðum
efst á baugi. A vorin er
álagstími í sölu á vinnu-
tækjum, bátavélum og
utanborðsmótorum. Um
sl. áramót var fyrirtæk-
ið sameinað öðru fyrir-
tæki í eigu Lýðs Björns-
sonar og fjölskyldu og
heitir nú Marinó Péturs-
son-Merkúr hf.,“ sagði
Ólafur Ársælsson, fram-
kvæmdastjóri véla-
deildar fyrirtækisins.
Jóhann Ólafur, eins og
hann heitir fullu nafni, er 50
ára og lauk vélfræðiprófi frá
Vélskóla íslands 1966. Hann
var vélstjóri á hvalbátum á
skólaárum sínum og fór að
vinna í Caterpillardeild
Heklu að námi loknu. Þar
vann hann í 11 ár við við-
gerðir og þjónustu á báta-
og vinnuvélum og gerðist
síðan sölustjóri í Sjóvéla-
deild Heklu.
1980 gerðist Ólafur þjón-
ustustjóri hjá Bflaborg og sá
um rekstur verkstæðanna
sem þjónuðu Mazda fólks-
bflum, Hinho vörubflum,
Komatsu vinnutækjum og
Yanmar bátavélum. Bfla-
borg hafði nýlega fengið um-
boð fyrir Yanmar bátavélar
þegar fyrirtækið hætti
rekstri. Ólafur fékk það um-
boð þegar hann byijaði hjá
Merkúr 1. aprfl 1990 sem
framkvæmdastjóri. Merkúr
hafði þá flutt inn vinnuvélar í
tíu ár.
LITLAR VINNUVÉLAR 0G
VÉLBÚNAÐUR í PLASTBÁTA
„Merkúr hefur lengi haft
umboð fyrir veghefla, og
jarðvegsþjöppur, m.a.
Aveling Barford veghefla
frá Bretlandi sem Vegagerð
ríkisins hefur mikið notað.
Þegar ég kom til starfa
bættust Yanmar bátavél-
arnar við og fleiri umboð,
m.a. fyrir valtara og dælur.
Sl. sumar fengum við um-
boð fyrir Hyundai gröfur frá
Kóreu en þær eru fram-
leiddar af sama fyrirtæki og
Hyundai tölvurnar og bflarn-
ir. í september 1992 yfir-
tókum við umboð á Yamaha
mótorhjólum og vélsleðum
sem Jötunn hf. hafði áður.
Verktökum hefur fækkað
og samkeppnin er hörð í
þjónustu við þá sem eftir
eru. Salan er mest í minni
vinnutækjum, t.d. litlum
gröfum, jarðvegsþjöppum,
beltavögnum, dælum o.fl.
Það er mikilvægt að hafa á
boðstólum það sem þá van-
hagar um en oft þarf að leita
uppi vörur til að geta þjónað
þeim sem best. Okkar
markmið er góð og vönduð
þjónusta frekar en út-
þensla,“ sagði Ólafur.
VINNUFÍKILL
Eiginkona Ólafs er Sigríð-
ur Karlsdóttir, fulltrúi í Iðn-
skóla Hafnarfjarðar.
Ólafur segist vera latur
við félagsstörf og ekki hafa
mörg áhugamál fyrir utan
vinnuna sem á hug hans all-
an. Hann fer stundum í sund
og badminton. „Ég á hús og
garð í Hafnarfirði sem ég
reyni að halda vel við og í
það fer talsverður tími. Ég
hef þurft að ferðast mikið í
tengslum við starfið, m.a. til
Japan og Kóreu, og hef mjög
gaman af því en hef allt of
lítið ferðast innanlands. Ég
hef þó gaman af því að
veiða, eða að bleyta í bandi
eins og ég kalla það, en það
er ekki alvarleg veiði-
mennska.
Ég er kannski dæmigerð-
ur vinnufíkill því auk vinn-
unnar hjá Merkúr hef ég að-
stoðað við rekstur á íþrótta-
vörubúðinni Fjölsport í
Hafnarfirði sem konan mín á
þriðjung í,“ sagði Ólafur að
lokum.
56