Frjáls verslun - 01.02.1994, Page 55
FOLK
ANNA S. JOHANNESDOTTIR,
BÚMANNSKLUKKUNNI
Anna vinnur í hálfu starfi sem ræstingastjóri hjá Securitas enda er veitingareksturinn
enn ekki farinn að skila arði.
„Við opnuðum Bú-
mannsklukkuna fyrir
tæpum tveimur árum og
bjuggum salinn gömlum
húsgögnum til að ná
stemningunni frá gömlu,
íslensku heimili. Það
passar vel við húsið í
Bemhöftstorfunni en
húsaleigan, sem við
greiðum til Minjavemd-
ar, er erfið og hefur lík-
lega orðið banabiti þeirra
sem hafa stundað veit-
ingarekstur hér áður.
Sumir segja að við mun-
um aldrei geta rekið
þetta nema að fara einu
sinni á hausinn og stofna
nýtt hlutafélag um rekst-
urinn. Við gerðum
tveggja ára áætlun í upp-
hafi og ætlum að þrjósk-
ast við að láta þetta
ganga,“ segir Anna S. Jó-
hannesdóttir, annar eig-
andi Búmannsklukkunn-
ar.
Anna ólst upp á Arskógs-
strönd og í Hrísey en tók
gagnfræðapróf frá héraðs-
skólanum að Núpi. Hún út-
skrifaðist sem sjúkraliði 1969
og vann á Sjúkrahúsi Akur-
eyrar og síðan í Lundi í Sví-
þjóð þar sem hún bjó í sjö ár.
1982 kom hún heim og vann í
Sunnuhlíð og á tannlæknast-
ofu. Um eins árs skeið bjó
Anna í Kanada en 1986 gerð-
ist hún ræstingastjóri hjá
Securitas og vinnur þar enn í
hálfu starfi með veitingahúss-
rekstrinum. „Þetta er dýrt
hobbý og hefur enn ekki gefið
tekjur af sér,“ segir hún.
KLUKKURNAR OF FUÓTAR
„Það var kallað búmanns-
klukka þegar bændur flýttu
klulíkunni til að fá vinnufólkið
fyrr á fætur og hugmyndin að
nafninu kom frá Sigurði G.
Tómassyni, eiginmanni
frænku minnar og meðeig-
anda Steinunnar Bergsteins-
dóttur. Hér eru sjö klukkur
og þær eru klukkustund of
fljótar.
Við Steinunn vinnum hér
báðar í hálfu starfi, ég hef
yfirumsjón með salnum og sé
um íjármálin, með aðstoð
endurskoðanda, og Steinunn
er í eldliúsinu og er hug-
myndafræðingurinn en hér
eru einnig lærðir kokkar og
þjónar. Það er vinsælt að
koma hingað í hádeginu, t.d.
hittist hópur Valsara hér á
hveijum virkum degi.
Einnig hittast ýmsir hópar
héma og geta fengið sérher-
bergi. Um helgar bjóðum við
dagverð þ.e. morgun- og há-
degisverð (brunch) sem hef-
ur m.a. notið vinsælda er-
lendra ferðamanna en á
sumrin bætum við íslenskum
réttum í dagverðinn, t.d.
skyri.
Veitingarekstur er þungur
um þessar mundir og það
þarf mikla útsjónarsemi til að
standaíþessu. Viðfömmt.d.
í stórmarkaði þegar þar er
tilboðsverð á grænmeti, mun
lægra verð en Sölufélagið
býður okkur. Margt hráefiii
gæti verið ódýrara, t.d. fá
veitingahús ekki afslátt á
smjöri hjá Osta- og smjörsöl-
unni eins og bakarar fá og við
fáum áfengið á sama verði og
almenningur í ríkinu en ekki á
neinu heildsöluverði."
Á SKAK Á SUMRIN
Eiginmaður Önnu er Stef-
án B. Sigurðsson prófessor í
lífeðlisfræði við Háskóla ís-
lands. Þau eiga sex böm á
aldrinum 12 til 26 ára en Stef-
án og Anna hafa bæði verið
gift áður. Bömin hafa öll
meira og minna aðstoðað við
reksturinn þó að þau séu nær
öll við nám.
„Fjölskylda mín á sumar-
bústað á Árskógssandi og bát
til að fara á skak og þangað
fer ég til að „afstressa“ mig.
Ég hef ekkert komist þangað
frá því við opnuðum Búmann-
sklukkuna en við ætlum þó
báðar að taka okkur mánað-
arfrí í sumar. Ég skrepp þó
stundum norður til að hitta
mömmu og systkini mín.
Ástæðan fyrir því að ég fór út
í veitingarekstur er að ég hef
mikinn áhuga á matargerð og
hef gaman af að bjóða gestum
heim. Því ekki að nýta það á
þennan hátt?“ segir Anna.
TEXTI: ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON
55