Frjáls verslun - 01.02.1994, Blaðsíða 59
FOLK
INGÓLFUR GUÐMUNDSSON,
MARKAÐSSTJÓRILANDSBANKANS
Ingólfur hefur átt þátt í að móta markaðssetningu Landsbankans þar sem mikil
áhersla er lögð á alhliða fjármálaþjónustu við einstaklinga.
„Fjármálaráðgjöf til
handa einstaklingum er
að færast til bankanna í
sífellt meira mæli og
einnig ýmiss konar
þjónusta. Bankastarfs-
menn eru því að verða
sölumenn og ráðgjafar í
stað þess að sinna ein-
göngu beinni af-
greiðslu. Landsbankinn
hefur lagt áherslu á að
bæta gæði þjónustunn-
ar t.d. á þjónustunám-
skeiðum, sem allir
starfsmenn hafa sótt, og
með þjónustufulltrúum
í útibúunum,“ segir Ing-
ólfur Guðmundsson,
forstöðumaður mark-
aðssviðs Landsbank-
ans.
Ingólfur er 36 ára og tók
stúdentspróf úr Mennta-
skólanum við Hamrahlíð.
1978 stofnaði hann fyrir-
tækið Sumarhús hf., þá
aðeins 21 árs gamall. Fyrir-
tækið flutti inn sumarhús frá
Noregi og Danmörku og
reyrhúsgögn sem hann seldi
í verslun við Háteigsveg.
Þegar Ingólfur fór til fram-
haldsnáms tók faðir hans við
rekstri fyrirtækisins.
„Ég lærði viðskiptafræði í
Álaborg og tók masterspróf
1989,“ segir Ingólfur.
„Þegar ég kom heim hóf ég
störf á markaðssviði Lands-
bankans en þá var einmitt
verið að undirbúa átak í ein-
staklingsviðskiptum. Unnið
var að vöruþróun og mark-
aðsathugunum og ég tók
m.a. þátt í að markaðssetja
Námuna sem ætluð er
námsfólki heima og erlend-
is. Kynningarstarf á Nám-
unni meðal íslenskra náms-
manna erlendis tókst svo
vel að okkur voru veitt 2.
verðlaun fyrir beina mark-
aðssetningu af samtökum
póststofnana á Norðurlönd-
um.
í janúar 1993 tók ég svo
við starfí forstöðumanns
markaðssviðs Landsbank-
ans.
60% MARKAÐSHLUTDEILD Á
HÚSNÆÐISSPARNAÐAR-
REIKNINGUM
Starfsemi markaðssviðs-
ins er margþætt og greinist
annars vegar milli einstakl-
ingsviðskipta og hins vegar
fyrirtækjaviðskipta. Unnið
hefur verið markvisst að
uppbyggingu þjónustunnar
undanfarin ár og náin sam-
vinna hefur verið á milli okk-
ar og útibúanna. Við höfum
nú opnari afgreiðslur og höf-
um komið okkur upp þjón-
ustufulltrúum sem stunda
almenna fjármálaráðgjöf,
t.d. aðstoða þeir fólk við að
sækja um til Trygginga-
stofnunar og Húsnæðis-
stofnunar. Samtímis hafa
verið þróuð þjónustuform í
bankanum, t.d. Varðan,
víðtæk fjármálaþjónusta
fyrir einstaklinga, og lögð
áhersla á að auka reglu-
bundinn spamað t.d. með
sölusamkeppni innan bank-
ans.
Samkeppni milli banka og
við ríkissjóð um reglubund-
inn sparnað er mikil og höf-
um við náð góðri markaðs-
hlutdeild á því sviði, t.d. á
húsnæðisspamaðarreikn-
ingnum Grunni en þar er
markaðshlutdeild bankans
nú 60%. Það hafði áhrif á
þann árangur þegar ríkið
bauð 25% endurgreiðslu á
skatti í tengslum við reglu-
bundinn spamað en sá af-
sláttur hefur nú verið lækk-
aður í 15%. Ungum við-
skiptavinum yfir 16 ára aldri
fjölgaði mjög með Námunni
og nú bjóðum við nýja fjár-
málaþjónustu, Gengið, fyrir
táninga undir 16 ára,“
ÚTIVERA 0G BARANUPPELDI
Eiginkona Ingólfs er Sjöfn
Þráinsdóttir þroskaþjálfi og
eiga þau fjögur börn sem
eru 13, 7, 2 ára og það
yngsta aðeins þriggja mán-
aða.
Helsta áhugamál Ingólfs,
fyrir utan barnauppeldi og
vinnu, er útivera. Hann hef-
ur gaman af silungsveiðum
og hefur aðgang að sumar-
bústað þar sem gott er að
dvelja.
„Eina tómstundagamanið
sem ég stunda er veggja-
tennis sem ég fer í tvisvar í
viku,“ segir hann.
59