Frjáls verslun - 01.09.1995, Blaðsíða 37
SÁRALÍTIÐ FLUTT ÚT TIL KÍNA
Útflutningur íslendinga til Kína nam einungis 28
milljónum á árínu 1994. Enda er vöruskiptajöfnuður
íslands við Kína verulega óhagstæður.
Innflutningur kínverskra vara til íslands nam um
1.357 milljónum króna í fyrra.
RÆKTUM RISANN
Reyndar má færa rök fyrir því að
rækta beri Kínamarkað, bæði vegna
náinna stjórnmálatengsla en Kína er
eina Suðaustur-Asíuríkið sem hefur
sendiráð hér á landi og því er aðgengi
íslenskra útflytjenda að Kínamarkaði
ef til vill betra en öðrum mörkuðum í
Suðaustur-Asíu. Einnig ber að taka
tillit til þess að ekki er mannsaldur
síðan að fyrrgreind ríki, að Japan frá-
töldu voru á meðal þróunarríkja.
Ef verg landsframleiðsla Kínveija
er reiknuð miðað við svokallaðan
kaupmáttarjafnvægismælikvarða (e.
purchasing power parity, PPP), sem
byggir á því hversu mikið þegnamir
geta keypt af sömu vörukörfu í mis-
munandi löndum, þá er landsfram-
leiðsla Kínverja sú næstmesta í heim-
inum á eftir Bandaríkjunum eða 2.870
milljarðar BandaríkjadoOara fyrir árið
1992 en Japanir eru í þriðja sæti miðað
við þennan mælikvarða. Reyndar
spáir breska tímaritið The Economist
því að Kína verði stærsta hagkerfi
heimsins eftir 25 ár en næst komi
Bandaríkin og Japan. Önnur Asíuríki
eins og Indland, Indónesía, Suður-
Kórea og ThaOand verða samkvæmt
þessari spá öO taOn meðal tíu stærstu
hagkerfa heimsins.
Því er það ef tO viO þess virði að
rækta viðskiptasambönd við Kína þó
að hagnaður af viðskiptunum verði
ekki fyrr en að nokkrum tíma Oðnum.
Rétt er að geta þess að samskipti
vestrænna stórfyrirtækja við kín-
verska embættismenn hafa verið upp
og ofan og hafa margir gefist upp, þar
höfum við reyndar íslenskt dæmi þar
sem rekstur lakkrísverksmiðju gekk
ekki sem skyldi. Það verður að teljast
vænlegast að íslendingar einbeiti sér
af strandhéruðunum þar sem aðrir
hafa rutt brautina. Þar höfum við
einna mesta möguleika en Kínverjar
eru mikil fiskneysluþjóð og nam sam-
anlagður fiskveiðiafli þeirra um 20
miOjónum tonna á síðasta ári og er
meginhluti hans kominn úr fiskeldi,
Það verður að segjast eins og er að
það er fátt sem við íslendingar getum
kennt öðrum í þeim efnum.
Aðrir möguleikar eru hins vegar í
útgerð og fiskvinnslu ásamt sölu á
tækjabúnaði. Þar geta alveg eins
leynst svipaðir möguleikar og á Kam-
chatkaskaganum í Síberíu en aOt frá
árinu 1991 hefur farið fram öflugt
markaðsstarf Kamchatka að frum-
kvæði Útflutningsráðs íslands. Þess
má geta að íslenskir framleiðendur
tækjabúnaðar eins og IceMac og
Marel hafa þegar notið ávaxta af því
markaðsstarfi, ásamt verkfræðifyrir-
tækinu Hnit og íslenskum sjávaraf-
urðum hf. íslenskar sjávarafurðir (ÍS)
fengu reyndar nýlega í sinn hlut við-
skipti með sjávarafurðir sem nema
mörg hundruð milljónum króna við
rússneska fyrirtækið UTRF. AOt
virðist reyndar benda í þá átt að mOdl-
vægasti útflutningsmarkaður ís-
lenskra sjávarafurða verði í framtíð-
inni Asíulönd en um 40,2% útflutn-
ings þess fyrirtækis fór til Asíu fyrstu
níu mánuði ársins miðað við 31,6% á
síðasta ári. Og í Morgunblaðinu 10.
nóvember síðastOðinn var sagt að í
ræðu Benedikts Sveinssonar, for-
stjóra ÍS, á aðalfundi fyrirtækisins
hefði komið fram að búast mætti við
að vægi Asíumarkaðar ykist enn frek-
ar í framtíðinni.
Sérþekking íslenskra fyrirtækja á
sjávarútvegi getur því alveg eins nýst
Kínverjum sem Kamchatkabúum.
Ekki er þó allt sem sýnist þar sem
aðrir möguleikar virðast vera í stöð-
unni eins og tæknileg aðstoð við nýt-
ingu jarðvarma í Kína og hefur verk-
fræðifyrirtækið Virknir-Orknitt um-
sjón með uppbyggingu hitaveitu í
borg sem er í nokkur hundruð kíló-
metra fjarlægð frá Peking.
"Fliegerchronograph" frá IWC.
Fyrir fólk sem vill vera á
toppnum.
Nýjasta gæðaúrið frá IWC er
nýlega lent hjá IWC
umboðsmanni þínum -
sögulegur sigurvegari hins
fræga úrs Mark XI.
Best væri fyrir þig að hefja
þig til flugs í stutta flugferð
í verslun okkar.
IWC
37