Frjáls verslun - 01.09.1995, Blaðsíða 46
NÆRMYND
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1969 og lauk lögfræðiprófi
frá Háskóla íslands 1975, fékk rétt-
indi héraðsdómslögmanns 1977 og
hæstaréttarlögmanns 1985. Hann
starfaði fyrst á lögfræðistofu hjá Eyj-
ólfi Konráð Jónssyni og Hirti
Torfasyni en hóf rekstur
eigin stofu 1978 ásamt Gesti
Jónssyni og Kristni Bjöms-
syni, frænda sínum, og hef-
ur starfrækt hana síðan í
Mörkinni 1. Kristinn er
reyndar hættur í lögfræði
og orðinn forstjóri Skelj-
ungs og HaUgrímur hætti
þegar hann tók við hjá Ár-
vakri. Nú eru Ragnar Hall
og Gunnar Jónsson meðeig-
endur stofunnar ásamt
Gesti.
Hallgrímur hafði nokkur
afskipti af félagsmálum á
skólaárum sínum, var for-
seti Framtíðarinnar, málf-
undafélags MR, og í stjóm
Vöku, félags stúdenta, á há-
skólaárunum. Hann hugði
reyndar á frekari metorð
innan Menntaskólans í
Reykjavík og bauð sig fram
til þess fomfræga embættis
Inspector scholae en það
hefur oft þótt haldgott veg-
anesti út í lífið, sérstaklega
fyrir þá sem hyggja á frama í
stjórnmálum. Hallgrímur
beið að vísu lægri hlut fyrir
Þorláki Helgasyni.
Hann hefur setið í stjóm
Lögmannafélags íslands, átt sæti í
siðanefnd Blaðamannafélags íslands
um skeið og er félagi í Rotaryklúbbi
Reykjavíkur. Hann sat í stjóm H.
Ben. 1976 til 1987, í stjóm Ræsis frá
1984 til 1992, stjórn Nóa-Síríus frá
1977 til 1987 og aftur frá 1992 auk
þess að sitja í stjórn Árvakurs.
Hallgrímur þótti góður námsmaður
á skólaárum sínum og skólafélagi
hans úr lagadeildinni lýsir vinnu-
brögðum þeirra svo:
„Við höfðum það fyrir sið, nokkrir,
að lesa mikið saman, meðal annars á
vinnustofunni í Lögbergi. Þangað
fluttum við heimilisfangið okkar þegar
prófin nálguðust en Hallgrímur hafði
annan hátt á. Þegar álagið jókst fyrir
prófin þá fór hann heim, lokaði sig þar
inni og kom svo glaðbeittur í prófin og
skaut flestum okkar ref fyrir rass.“
Þess má til gamans geta að tvö
systkini Hallgríms, Finnur og Áslaug,
eru með doktorsgráðu, hann í hag-
fræði en hún í jarðfræði. Kunnugir
segja að þessar tvær doktorsgráður
séu þær tvær sem íslendingar hafi
náð sér í í seinni tíð sem ekki hefur
verið sagt frá í Morgunblaðinu.
Hallgrímur er kvæntur Aðalbjörgu
Jakobsdóttur f. 18.5.1949 en hún er
dóttir Jakobs Gíslasonar, fyrmm
orkumálastjóra, og Sigríðar Ás-
mundsdóttur. Þau eiga eina dóttur,
Emu Sigríði f. 1972, og búa við Vest-
urbrún í Laugarási, steinsnar frá
æskuslóðum Hallgríms. Þau kynnt-
ust ung þegar leiðir þeirra lágu saman
í Menntaskólanum í Reykjavík.
Góðir vinir Hallgríms eru t.d.
Kristinn Bjömsson, frændi hans, for-
stjóri Skeljungs, og Friðrik Pálsson,
forstjóri SH, Jón Bragi Bjamason
prófessor og Jón Ásbergsson, for-
stjóri Útflutningsráðs, en á skólaár-
unum var Hallgrímur mikið með Pétri
Kr. Hafstein, Valgerði Bjamadóttur
og Vilmundi heitnum Gylfasyni og
Ögmundi Jónassyni, svo
nokkrir séu nefndir. í þess-
um árgangi í Menntaskólan-
um í Reykjavík var margt
manna sem nú em komnir til
valda og áhrifa í samfélaginu
og nægir að nefna Davíð
Oddsson, Hrafn Gunnlaugs-
son og Þórarinn Eldjám úr
þeim hópi. Þama var einnig
Ingólfur Margeirsson ævis-
agnaritari, Sigurður Páls-
son, skáld og fararstjóri,
Stefán Friðfinnsson, núver-
andi forstjóri íslenskra aðal-
verktaka, og Guðmundur
Einarsson, fyrrum þing-
maður og rithöfundur.
Umræddur vinahópur
hittist h'tið með reglulegum
hætti en þó er ávallt einu
sinni á ári, fyrsta daginn í
nýju ári efnt til fagnaðar
heima hjá einhverjum úr
hópnum, gömlu kynnin rifj-
uð upp og vinaböndin
treyst. Við þau tækifæri og
fleiri em rifjaðar upp sögur
og skemmtiatriði sem fylgt
hafa hópnum lengi. Eitt hið
klassískasta er þegar þeir
frændur og vinir Hallgrímur
Geirsson og Kristixm
Björnsson syngja saman
lagið um Málarameistarafélag
Reykjavíkur úr gamalli stjónvar-
psauglýsingu félagsins. Þessi hópur,
sem telur átta hjón og samanstendur
af Hallgrími, Kristni, Jóni Ásbergs,
Jóni Braga, Friðrik Pálssyni, Stefáni
Friðfinns, Oddi Eiríkssyni, Guð-
mundi Einarssyni og mökum þeirra, á
sér ákveðna forsögu. Þegar þetta fólk
var saman í menntaskóla hafði blóma-
byltingin, sem oft er kennd við 1968,
ekki almennilega náð fótfestu í ís-
lenskum menntaskólum og í þessum
hópi gengu allir með hálsbindi frekar
en ennisband og hárið náði ekki niður
fyrir eyrun fyrr en seinna.
Þegar 68-kynslóðin fór að leita að
sjálfri sér upp úr 1980 með því að
Hallgrímur B. Geirsson. Hann og faðir hans, Geir heit-
inn Hallgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, áttu
afar vel skap saman og ræddu oft mikið um stjórnmál
og þau vandamál sem upp komu í dagsins önn.
46