Frjáls verslun - 01.09.1995, Blaðsíða 51
hvorki meira né minna. Falli viðkom-
andi frá skömmu eftir að hann er kom-
inn á eftirlaunaaldurinn rennur eign
hans til lögerfingja.
Vegna samtryggingarinnar getur
umræðan um það hvort sér- eða sam-
eignarsjóðir séu heppilegri orðið svo-
lítið erfið þar sem ekki er um sams
konar sjóði að ræða. Eðli þeirra er
ekki það sama. Engu að síður komast
menn ekki hjá að ræða slíkt. Þetta er
einmitt spumingin sem brennur á
mönnum, eins og einyrkjum, sem
geta valið um sjóði og ætla einmitt
núna að hefja lífeyrissparnað eftir að
dómur er fallinn.
Hér hefur verið gert ráð fyrir að
einyrkinn hafi aldrei greitt í neinn líf-
eyrissjóð þegar hann, á miðjum aldri,
ætlar að byrja. Það er kannski of ein-
faldað dæmi. Huga verður auðvitað
að stærsta hópnum, launamönnum og
einyrkjum, sem hafa greitt í lífeyris-
sjóði eins og lög gera ráð fyrir.
AÐ RÁÐA SJÁLFUR TEKIUNUM
Á EFTIRLAUNAALDRINUM
Hafi þeir greitt í sameignarsjóði alla
sína tíð geta þeir aukið lífeyrisréttindi
sín með því að hefja einnig greiðslur í
frjálsu séreignarlífeyrissjóðina. Oft
vilja menn nýta séreignarsjóði til þess
að hætta fyrr að vinna og njóta lífsins.
Þeir eiga þá önnur lífeyrisréttindi sem
taka við að loknu þessu tímabili.
Sömuleiðis velur fólk á miðjum aldri,
sem gengur að lífeyri vísum úr sam-
eignarsjóðum á eftirlaunaaldrinum,
frjálsu lífeyrissjóðina til að ráða tekju-
flæðinu á eftirlaunaaldrinum. Það vill
hugsanlega fá meiri lífeyri frá 67 til 75
ára en frá 75 til 80 ára.
í mörg ár hafa verið fluttar fréttir
um að lífeyrissjóðakerfið væri gjald-
þrota, að margir sjóðanna hefðu lofað
meiru en þeir gætu staðið við. Á und-
anfömum ámm hefur staða sameign-
arsjóðanna hins vegar batnað veru-
ÍSLENSKI LÍFEYRISSJÓÐURINN
DÓMUR ER FALLINN
ÞÉRÍHAG
- lífeyrissjóðsframlag sjálfstæðra atvinnurekanda er nú frádráttarbært!
I
Islenski lífeyrissjóðurinn
- hæsta raunávöxtun
séreignasjóða verðbréfafyrirtækja
1991, 1992,1993 og 1994
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hnekkt þeirri lagatúlkun skattayfirvalda að
atvinnurckstrarframlag einyrkja til lífeyrissjóðs falli ekki undir rekstrarkostnað.
Það misrétti sem ríkt hefur milli rekstrarforma varðandi lífeyrissjóðsmál
er því væntanlega úr sögunni.
Hafir þú ekki greitt í lífeyrissjóð til þessa - þá er rétti tíminn núna!
Með því að sýna fyrirhyggju í lífeyrismálum tryggir þú þér tekjur á
eftirlaunaárunum.
SUÐURLANDSBRAUT 24,
LANDSBRÉF HF.
Zfri - XWy
Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aöili aö Veröbréfaþingi Islands.
108 REYKJAVÍK, SÍMI 588 9200,
B R É F A S í M I
588 8598
51