Frjáls verslun - 01.09.1995, Page 39
Tölvusamskipti hf. hafa opnað þar
söluskrifstofu.
Horfa verður til þess að íslensk
útgerðar- og fisksölufyrirtæki eiga nú
hlut í fjöldamörgum fyrirtækjum út
um allan heim. Uppsjávarafli þessara
fyrirtækja gæti reynst góð söluvara í
Kína og öðrum Suðaustur-Asíulönd-
um vegna lágs framleiðslukostnaðar.
Síðar gætu hefðbundnar afurðir fylgt
á eftir. En nefna má sölu íslenskra
sjávarafurða á 12 þúsund tonnum af
afurðum frá UTRF í Kamchatka til
Kína núna nýlega.
ÁHUGIÍSLENDINGA ER MIKILL
Áhugi íslendinga á viðskiptatæki-
færum í Suðaustur-Asíu virðist vera
mikill þessa daganna, þó sérstaklega í
Kína. Til marks um það má nefna að
um 90 manns mættu á stofnfund ís-
lensks-kínversks viðskiptaráðs á
vegum Félags íslenskra stórkaup-
manna á dögunum. En tilgangur ráðs-
ins er fyrst og fremst til þess fallinn
efla inn- og útflutning frá og til Kína
ásamt því að vera samstarfsvettvang-
ur til skoðanaskipta og upplýsingaöfl-
unar.
Kína er víðfeðmt ríki og því væri í
raun rétt að líta á landið sem marga
markaði, enda er efnahagsleg fram-
þróun mismunandi milli fylkja, ásamt
því að neyslumynstur er mismunandi
eftir landshlutum. Samkvæmt
skýrslu Utflutningsráðs um Kína eru
Peking og Shanghai svæðin, ásamt
Guangdong fylki, vænlegustu svæðin
til markaðssetningar, enda gefa vax-
andi tekjur íbúanna betri vonir um að
viðunandi verð fáist fyrir útflutnings-
vörur íslendinga. Vandamálið við út-
flutning á matvælum héðan til Kína og
annarra Suðaustur-Asíu landa er að
tollar eru þar háir á sjávarafurðum.
Einnig er flutningskostnaður til Suð-
austur-Asíulanda töluverður. Ekki
má samt leggja árar í bát, enda er
velferð íslendinga byggð á útflutn-
ingi. Horfa verður til fleiri greina ís-
lensks atvinnulífs og nýta þau mark-
aðstækifæri sem gefast Suðaustur-
Asíu, en enginn efast um að þau sé
gífurleg, en mikla þolinmæði og
þrautseigju þarf til vinna þann mark-
að. Samstarf útflytjenda við þá, sem
hafa rutt brautina, gæti verið heilla-
vænlegt.
-.un.i j*oi
Fundvísá
réttu lausnina!
Nýttu þér reynslu okkar
af ráðstefnum.
Ef þú ætlar að halda ráðstefnu hér á landi
getur þú reitt þig á aðstoð okkar.
B Við önnumst hótelpantanir, skráningu gesta, pant-
anir og skipulag á málsverðum, fundarfyrirkomulag
— jafnvel skemmtiefni ef með þarf!
B Starfsfólk innanlandsdeildar Samvinnuferða
- Landsýnar býr yfir áralangri reynslu. Sú reynsla,
persónuleg þjónusta og mikil þekking tryggir þér
hagkvæmustu lausnina. Gestir þínir eiga í vændum
eftirminnilega og ánægjulega dvöl hér á landi.
B Leitaðu frekari upplýsinga um ráðstefhuþjónustu
okkar hjá Samvinnuferðum - Landsýn, innanlandsdeild.
Samvlniiiiferðlr-L endsýn
Innanlandsdeild: Austurstræti 12 • Sími 569 1070
Símbréf 552 7796 • Telex 2241
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA