Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1995, Síða 53

Frjáls verslun - 01.09.1995, Síða 53
 S' ALVÍB: SÁiiÍF nr- Eini séreignarsjóðurinn sem tryggir lífeyri til æviloka ALVÍB hefur samið við Sameinaða líftryggingarfélagið hf, SAMLÍF, um að hjóða sjóðfélögum í ALVÍB lífeyristryggingar á hagstæðu verði. SAMLÍF er í eigu Sjóvá-Almennra trygginga og Tryggingamiðstöðvarinnar. Gert er ráð fyrir að sjóðfélagar velji sér tryggingar eftir þörfum hvers og eins en sér- frœðingar VÍB og SAMLÍF eru reiðubúnir að aðstoða við val á tryggingum. ALVÍB mun sjá um greiðslu tryggingariðgjalda fyrir sjóðfélaga og upplýsingar um tryggingavemd munu birtast á yfirlitum til sjóðfélaga. Með því að greiða í ALVÍB og kaupa lífeyris- tryggingar hjá SAMLÍF geta sjóðfélagar greitt í séreignarsjóð og notið sambærilegra trygginga og sjóðfélagar í sameignarsjóðum njóta. Með þessu móti vita sjóðfélagar nákvæmlega hversu hátt hlutfall iðgjalda fer í eftirlaunasjóð annars vegar og tryggingar hins vegar. Þeir vita nákvæmlega hvað hver trygging kostar og hver inneign þeirra í séreignarsjóði er á hverjum tíma. Þær tryggingar sem SAMLÍF býður sjóðfélögum í ALVlB eru eftirfarandi: Líftrygging tryggir nánustu vandamönnum fjárhagslegt öryggi við fráfall sjóðfélaga. Eftir því sem inneign í ALVÍB eykst minnkar þó þörfin á líftryggingu. Iðgjaldstrygging tryggir áframhaldandi greiðslu í lífeyrissjóð og kaup á tryggingum ef starfsorka skerðist um helming eða meira. Afkomutrygging tryggir mánaðarlegar tekjur til 60 eða 65 ára aldurs ef starfsorka skerðist um helming eða meira af völdum sjúkdóma eða slyss. Ævilífeyrir tryggir mánaðarlegar greiðslur frá lífeyrisaldri til dánardags. Þannig má hugsa sér að greiðslur úr ævilífeyri taki við þegar sjóðfélagi er búinn með inneign sína í ALVÍB. Sjúkra- og slysatrygging, tryggir dagpeninga- greiðslur í allt að þrjú ár vegna slyss eða sjúkdóms og eingreiðslu við varanlega örorku, ef örorka er metin 40% eða meira vegna slyss eða sjúkdóms. Hefur þú kynnt þér bæklinginn um ALVÍB, Almennan lífeyrissjóð VÍB? í honum er að finna upplýsingar um hvernig tryggja má fjárhagslegt öryggi alla ævina með því að greiða í ALVlB. Bæklingurinn liggur frammi í afgreiðslum VÍB, Tryggingamiðstöðvarinnar og Sjóvá-Almennra. FORYSTA í FJARMALUM! VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ISLANDSBANKA HF. • Aðili að Verðbréfaþingi Islands • Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560-8900. Myndsendir: 560-8910.

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.