Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 34
VIÐTAL
Herragarðurinn hefur verið frá fyrsta
degi og gengið vel.
Garðar segist hafa séð fram á að
fyrirtækið myndi dafna og vaxa með
þeim ungu mönnum sem kaupa af
honum og því fundist tilvalið að selja.
Annan þeirra, Sigurjón Þór, þekkti
hann vel eftir að Sigurjón hafði unnið í
Herragarðinum um tíma.
„Ég kenndi honum allt sem hann
kann,“ segir Garðar.
FERÐAGARPUR Á FJÖLLUM í 30 ÁR
Garðar er maður margra áhuga-
mála sem hann hefur gefið sér mis-
jafnlega mikinn tíma til að sinna með-
fram vinnu sinni. Hann hefur mjög
gaman af því að ferðast að hefur gert
meira af því en margur annar og með
öðrum hætti.
ef ég væri 25 árum yngri þá væri ég
sjálfsagt með þeim í leiðangrinum á
Everest."
Garðar hefur ferðast mikið á hest-
um um ísland og riðið með góðum
hópi ferðafélaga um Lönguijörur, yfir
Kjöl, um Mývatnsöræfi og víðar.
Þetta eru ferðir sem reyna mikið á
þrek og þol og taka 10-12 daga. En á
hann hesta?
„Nei, það er varla hægt að segja
það. Ég hef verið svo önnum kafinn
að Einar Bollason, vinur minn, hefur
séð um að útvega mér hross í þessar
ferðir. Ég á einn hest en hann er hjá
Einari, samkvæmt umtali og hann
hirðir um hann. Þetta er ágætt fyrir-
komulag. Svona hestaferðir eru dá-
samlegur ferðamáti sem við hjónin
höfum bæði notið.“
„Þeim finnst þetta töff. Margir
segja að þeir dáist að þessari ákvörð-
un, að ég skyldi þora að selja og þetta
er hlutur sem marga á mínum aldri
langar til að gera. Að ná að njóta lífs-
ins meðan þú ert enn í fullu fjöri. “
Fjalla- og ferðamaðurinn Garðar
heldur sér í formi með því að synda á
hverjum degi en auk þess tekur hann
skorpur í leikfimi og líkamsrækt og
æfir þá í Gym 80.
„Það er nauðsynlegt að hreyfa sig
reglulega og þegar ég var í vondu
skapi þá sögðu strákamir í búðinni
mér stundum að nú skyldi ég drífa mig
í leikfimi svo ég kæmist í gott skap.
Ég kom alltaf brosandi til baka.“
KAFLASKIPTI í LÍFINU
En hvenær var nú besti tíminn á
EKKI AFTUR ÚT í REKSTUR
„Ég ætla sannarlega ekki að fara út í rekstur af neinu tagi. Þeim kafla í
lífi mínu er lokið. Ég hef verið beðinn um ráðgjöf um ýmislegt
sem varðar verslunarrekstur og sitthvað fleira og býst við að sinna því eitthvað.
Mér gæti líka dottið í hug að fara í skóla.“
Garðar er vanur og harðsnúinn
fjallamaður sem hefur ferðast um há-
lendi íslands í meira en 30 ár, bæði
sumar og vetur, og starfaði á sínum
yngri ámm mikið innan Flugbjörgun-
arsveitarinnar. Hann hefur klifið fjöll,
skíðað jökla og verið skálavörður á
Hrafntinnuskeri. í júlí í sumar verða
30 ár síðan hann gekk, hann ásamt
sex félögum sínum úr sveitinni, yfir
endilangan Vatnajökul á skíðum. „A
þessum ámm voru slíkar ferðir
óþekktar, þetta var sú fyrsta á þess-
ari öld og margir töldu þetta mikið
flan. En við leystum verkefnið og
komum allir heim aftur.“
FÆRIÁ EVEREST EF ÉG VÆRIYNGRI
Garðar er síður en svo hættur að
ganga á erfið fjöll því hann fór fyrir
fáum árum til Nepal og Burma og
tókst á við náttúruna í þeirri paradís
íjallamanna sem þar er. Hann var í
Nepal um svipað leyti og þremenning-
amir, sem í vor ætla að verða fyrstir
íslendinga til að klífa Everest, vom að
fást við Cho Oyu og settu þar með
hæðarmet íslenskra fjallgöngumanna.
„Þetta eru menn að mínu skapi og
Garðar segir alveg ömggt að hann
muni ferðast meira á næstunni því
hann eigi margar ferðir ófamar, bæði
innanlands og utan. Hann hefur átt
sumarbústað austur í Grímsnesi í 30
ár þar sem hann stundar skógrækt.
„Þetta er mikill unaðsreitur og nú
erum við farin að fella tré þar í skógar-
lundinum."
SJÁLFSTÆÐIR ATVINNUREKENDUR
SPILA EKKIG0LF
í því skyni að forvitnast um hefð-
bundin áhugamál sem líklegt er að
Garðar snúi sér að er freistandi að
spyrja hann út í golf og laxveiðar?
„Sjálfstæðir atvinnurekendur hafa
ekki tíma til að spila golf. Svo einfalt
er það og ég hef aldrei spilað golf.
Hvað varðar laxveiðina þá fékk ég
mig fullsaddan af þeim góða fiski
þegar ég átti hlut í laxeldisstöð með
Eyjólfi Konráð heitnum, vini mínum.
Það var ágætt en mér er sama þó að
ég sjái aldrei lax framar."
Þannig er Garðar. Dálítið óútreikn-
anlegur. Fæstir hefðu búist við að
hann settist í helgan stein. Hvað
finnst félögunum?
þessum 25 ámm sem Garðar hefur
stundað sjálfstæðan atvinnurekstur?
„Það var alger sprenging í rekstr-
inum síðustu tvö árin áður en við opn-
uðum í Kringlunni og fyrstu þijú árin
eftir að við fórum þangað. Mjög góð
ár.“
Sú spuming, sem flestir hljóta að
spyrja sig og spyrja reyndar Garðar
þegar þeir hitta hann, er: Og hvað
ætlar þú nú að fara að gera? 54 ár er
ekki hefðbundinn eftirlaunaaldur og
því eðlilegt að spyrja?
„Síðan ég hætti hef ég fengið fjölda
fyrirspurna og nokkuð tilboð um
vinnu. Ég ætla sannarlega ekki að
fara út í rekstur af neinu tagi. Þeim
kafla í lífi mínu er lokið. Ég hef verið
beðinn um ráðgjöf um ýmislegt sem
varðar verslunarrekstur og sitthvað
fleira og býst við að sinna því eitt-
hvað. Mér gæti líka dottið í hug að
fara í skóla.
En það er svo margt sem ég á eftir
að gera, margt sem mig langar til að
gera. Bömin em flogin úr hreiðrinu
og við hjónin nánast ein. Við sjáum
fram á frjálsari tíma, getum verið
meira saman og notið lífsins.“
34