Frjáls verslun - 01.02.1997, Síða 42
ið erum með bílageymslu inn-
anhúss undir öllu hótelinu og
erum eina hótelið á landinu
sem getur boðið upp á slíkt, sagði
Júlíus Steinþórsson, aðstoðarhótel-
stjóri Flughótels, í samtali við Frjálsa
verslun.
„Við bjóðum þess vegna mjög sér-
stæðan pakka til þeirra sem eru á
leið til útlanda og vilja vita af bílnum
á öruggum stað undir þaki á meðan.
I pakkanum er gisting, morgunverð-
ur, akstur á flugvöll og geymsla á
bílnum í allt að tvo mánuði meðan þú
ert í burtu. Við sækjum svo fólk á
flugvöllinn þegar það kemur heim.
Þessi þjónusta nýtur vaxandi vin-
sælda, sérstaklega eftir að farið var
að taka gjald fyrir bílastæðin á vellin-
um. Fjölskyldufólki finnst gott að
koma hér kvöldið áður og tékka sig
inn og er þá í rauninni byrjað í fríi.“
Júlíus sagði að nálægðin við flug-
völlinn hefði ákveðin áhrif á það
hve lengi fólk gisti og fleira. Marg-
ir gestanna eru e.t.v. að vinna tíma-
bundið við herstöðina, flugáhafnir,
sem eru í „stopover", gista mjög
mikið á Flughótel og þeir sem eru
aðeins á íslandi eina til tvær nætur.
„Svo fáum við mikið af hópum
sem dvelja hér fyrstu nóttina á Is-
landi og fara síðan annað. Svo loka
þeir hringnum með því að gista hjá
okkur aftur síðustu nóttina áður en
þeir fara.“
Flughótel býður upp á ágæta að-
stöðu fyrir litla fundi og árshátíðir
smærri fyrirtækja og nýting þess á
því sviði fer vaxandi.
„Við erum með 80 manna sal og
lítil fyrirtæki nota hann fyrir árshá-
tíðir. Annar lítill fundarsalur tekur
16 manns og þar er vinsælt að
Áður en þú leggur í hann til útlanda
Flughótel í Keflavík var opnað 17. júní 1988 og er óhætt
að segja að það hafi fengið byr undir báða vængi allt frá
fyrsta degi. A hótelinu eru 42 herbergi, þar af þrjár svítur,
og geta um 90 manns gist á hótelinu í einu. Húsið er í eigu
Byggingaverktaka í Keflavík en Steinþór Júlíusson og fjöl-
skylda hans leigja reksturinn og hafa annast hann frá upp-
hafi. Flughótel stendur við aðalgötu bæjarins og er ör-
skammt frá Keflavíkurflugvelli sem gefur því nokkra sér-
stöðu.
halda stjórnarfundi. Einnig er vinsælt og hentugt fyrir fyr-
irtæki að koma hingað úr Reykjavík með starfsmanna-
fundi, ráðstefnur eða námskeið sem standa kannski að-
eins yfir daginn. Hér fæst þessi samþjöppun hópsins og
friður án þess að þurfi að eyða miklum tíma í ferðalög.“
Á Flughóteli eru öll tveggja manna herbergin eins. Á
hveiju herbergi er minibar, sími, sjónvarp, fullkomið bað-
herbergi, opið gervihnattasjónvarp og herbergisþjónusta.
í kjallara hótelsins er verið að koma upp heilsuræktarað-
A hverju herbergi er minibar, sími, sjónvarþ, fullkomið
AUGLÝSINGAKYNNING
42