Frjáls verslun - 01.10.1997, Page 9
eIWa^^etaðger''5t
^skjánum er hægt
Þorsteinn Garðarsson markaðsstjóri og Helgi A. Nielsen, aðstoð-
arframkvæmdastjóri þjónustusviðs.
Skýrr hf. eru öflugt og framsækiö upplýs-
ingafyrirtæki sem kappkostar að bjóða
viðskiptavinum heildarlausn við hagnýt-
ingu á upplýsingatækni. Skýrr leggja
áherslu á gæði, öryggi og þjónustu og að
sníða lausnir að
þörfum viðskiptavina sinna.
í rekstrarþjónustu felst vöktun á miðlur-
um og gagnasöfnum, afritataka, geymsla
afrita og prentun og ennfremur verk-
stjórn, bilanagreining, rýmdaráætlun og
rekstur netkerfa.
Starfsmenn Skýrr búa yfir sérfræðiþekk-
ingu i rekstri tölvukerfa. Fyrirtæki hafa
þann kost að leita til Skýrr hf. í stað
þess að koma sér upp þekkingu og
reynslu á þessu sviði.
settir eftir að bilanir hafa komið upp, svo
ekki sé talað um innbrot, þjófnaði og
skemmdarverk þar sem tölvugögn hafa
glatast þar eð afritatöku hefur ekki verið
sinnt sem skyldi. Útfærsla afritatöku getur
verið með ýmsu móti en hún fer, eins og
vöktunin, fram í gegnum línur milli Skýrr
og fyrirtækisins. Skýrr hafa sérstakar, eld-
traustar öryggisgeymslur fyrir öll afrit,
sem eru í þeirra vörslu, bæði í höfuðstöðv-
unum í Ármúla og í geymsluhúsnæði ann-
ars staðar í borginni.
Þriðji liður rekstrarþjónustunnar er
verkstjórn og bilanagreining. í því felst að
starfsmenn Skýrr finna orsök bilunar, hvort
sem hún er í vél- eða hugbúnaði. Síðan er
lagt mat á það hvað gera þurfi til þess að
lagfæra bilunina og kallaðir eru til þjón-
ustuaðilar. Starfsmenn Skýrr geta einnig
stýrt lagfæringunni og gengið úr skugga
um að hún hafi tekist auk þess sem þeir
sjá um verkstjórn, koma að ákvarðana-
töku, samræma aðgerðir og ganga úr
skugga um að viðgerð, innsetning, aðlög-
un eða samþætting hafi gengið eðlilega
fyrir sig.
SPARAR TÍMA OG FJÁRMUNI
Allt eru þetta atriði sem geta sparað
fyrirtækjum tíma og fjármuni. Starfsmenn
Skýrr búa yfir sérfræðiþekkingu í rekstri
tölvukerfa og fyrirtæki hefur því þann val-
kost að leita til Skýrr hf. í stað þess að
koma sér sjálft upp þekkingu og reynslu á
þessu sviði.
„Þar að auki höfum við boðið upp á al-
menna ráðgjöf og skipulagningu netkerfa
fyrir þá, sem þurfa á því að halda, og vel
kemur til greina að við tækjum að okkur
rekstur netanna líka," segir Þorsteinn.
„Víða erlendis hafa stærri og smærri fyrir-
tæki talið hagkvæmt að fá rekstrarþjón-
ustu á borð við þá, sem Skýrr bjóða nú, og
er ekki ólíklegt að þessi þjónusta eigi einn-
ig eftir að færast í vöxt hér á landi þar sem
hún hefur bæði hagræði og þægindi í för
með sér fyrir fyrirtækin." ffl
Nánari upplýsingar um þessa þjón-
ustu veitir Helgi A. Nielsen, aðstoðar-
framkvæmdastjóri þjónustudeildar
Skýrr hf.
Ármúli 2
Sími: 569 5100
Bréfasími: 5695251
9