Frjáls verslun - 01.10.1997, Qupperneq 16
Þeir voru viðstaddir opnun sýningarinnar. Frá vinstri:
Snorri Pétursson, aðstoðarforstjóri Iðnþróunarsjóðs, Jón
Asbergssson, framkvæmdastjóri Utflutningsráðs, Júlíus Haf-
stein, íyrrv. borgarfulltrúi og Vilhjálmur Guðmundsson,
starfsmaður Utflutningsráðs. FV-myndir: Geir Ólafsson.
tak til atvinnu-
sköpunar í
samvinnu við
Iðntæknistofnun og
Útflutningsráð hélt
sýpingu í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Atak til
atvinnusköpunar hef-
ur styrkt sérstaklega
nýsköpun og vöru-
þróun í litlum og með-
alstórum fyrirtækjum
sem hafa viljað heija
útrás á erlenda mark-
aði. Mikil gróska hefur
verið í þessu starfi og
verkefnin sem Atakið
hefur stutt, talin í tug-
um. Mörg þeirra
sýndu afraksturinn við
þetta tækifæri.
Fatahönnun er meðal vaxtar-
brodda atvinnulífsins og Atak
tíl atvinnusköpunar hefur lagt
fé í verkefni á þvi sviði.
Móeiður Júníusdóttír söngkona
þandi raddböndin við opnun
sýningarinnar í Ráðhúsinu.
Páll Kr. Pálsson er nýráðinn framkvæmdstjóri hins
nýstofiiaða Nýsköpunarsjóðs atvinnuveganna.
FV-mynd: Geir Ólafsson.
í ELDLÍNUNNI
□ áll Kr. Pálsson hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri hins nýstoihaða Nýsköpunar-
sjóðs atvinnuveganna. Páll á að baki langan
feril í viðskiptalífinu sem má rekja aftur til þess tíma
þegar hann rak skólasjoppuna Sómalíu í menntaskól-
anum við Hamrahlíð en þaðan útskrifaðist hann 1973.
Páll lærði hagverkfræði í Berlín og starfaði síðan
hjá Félagi íslenskra iðnrekenda og Iðntæknistofnun
fram til 1991 þegar hann gerðist framkvæmdastjóri
Vífilfells. Þar var hann til 1994 þegar hann settist í for-
stjórastól í Sól hf. og var þar í forystu fyrir hópi hlut-
hafa sem freistuðu þess að reisa fyrirtækið við eftir
nokkra erfiðleika. Örlögin höguðu því síðan þannig að
Vífilfell keypti meirihluta í Sól gegnum dótturfyrirtæki
sín og Páll hætti sem forstjóri þar seint á þessu ári.
Páll hefur ekki aðeins fengist við stjórnun heldur
einnig kennt í Háskóla íslands og Tækniskóla íslands
og skrifað þrjár bækur sem lúta að stjórnun fyrirtækja
og nýsköpun í íslensku atvinnulífi.
Páll er kvæntur Helgu Lísu Þórðardóttur markaðs-
stjóra og eiga þau einn son. í frístundum sínum tekur
hann virkan þátt í safnaðarstarfi Bústaðasóknar, sækir
danstíma, spilar körfubolta og badminton og rennir
stundum fyrir lax.
Páll kom auk þess við sögu í íslenskri atvinnusögu,
þegar hann stofnaði, ásamt félögum sínum, krána
Gauk á Stöng við Tryggvagötu um 1980. Hún er
„elsta“ krá Reykjavíkur.
Páll er sagður glaðlyndur, vinnusamur og skipu-
lagður. Skipulag, aga og stundvísi lærði hann í Þýska-
landi en hann mun hafa hrifist mjög af skipulagi
þýskra. SD
(úr nærmynd Frjálsrar verslunar 1994)
16